Document Actions

Baltic Development Forum 2010: Svæðisbundnar lausnir á evrópskum áskorunum

Efnahagskreppan hefur haft mikil áhrif á mög lönd við Eystrasaltið. Baltic Development Forum (BDF) 2010 beinir sjónum að því hvað svæðisbundið samstarf getur lagt að mörkum til að leysa áskoranir sem Evrópa stendur nú frammi fyrir. Baltic Development Forum (BDF) 2010 beinir sjónum að því hvað svæðisbundið samstarf getur lagt að mörkum til að leysa áskoranir sem Evrópa stendur nú frammi fyrir. Norrænt samstarf er gott dæmi um þetta.

May 31, 2010
Halldór Ásgrímsson

„Svæðisbundið samstarf og pólitísk forysta geta styrkt stöðu lítilla landa, það hefur reynslan sýnt okkur á Norðurlöndum“, segir Halldór Ásgrímsson.

Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

„Svæðisbundið samstarf og pólitísk forysta geta styrkt stöðu lítilla landa, það hefur reynslan sýnt okkur á Norðurlöndum“. „Svæðisbundið samstarf og pólitísk forysta geta styrkt stöðu lítilla landa, það hefur reynslan sýnt okkur á Norðurlöndum. Fyrir lítil lönd, eins og norrænu ríkin, getur svæðisbundið samstarf stuðlað að því að auka alþjóðlega samkeppnishæfni, til að mynda með samþættum mörkuðum, samnýtingu auðlinda, miðlun reynslu og í alþjóðlegu samstarfi“, segir Halldór Ásgrímsson, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, í upphafi ráðstefnunnar Baltic Development Forum sem haldin er í höfuðborg Litháen, Vilníus dagana 1. og 2. júní.

Þema ráðstefnunnar í ár er: „Evrópskar áskoranir – svæðisbundnar lausnir: áætlun um vinnu, fjárfestingar og sjálfbæran hagvöxt“. Þátttakendur í ráðstefnunni verða meðal annars ráðherrar, stjórnmálamenn og forystumenn úr atvinnulífinu á Eystrasaltssvæðinu. Norræna ráðherranefndin er samstarfsaðili BDF.

Halldór Ásgrímsson mun taka þátt í vinnustofu um skýrsluna State of the Region (stöðumat á svæðinu), sem gefin er út í tengslum við ráðstefnu BDF. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að efnahagslíf í ríkjum við Eystrasalt hefur orðið fyrir meiri áhrifum af hinni alþjóðlegu efnahagsþróun en önnur ESB og OECD ríki.

„Ég tel mikilvægt það sem fram kemur í skýrslunni að mesta ógnin stafar ekki af samkeppni við aðra heimshluta heldur viljaleysii til að breyta nokkru heimafyrir. Á krepputímum er áberandi að þeir sem geta tekist á við breytingar og hafa hæfileika til að aðlagast nýjum aðstæðum standa sig best“, segir Halldór Ásgrímsson. Norræna ráðherranefndin og Evrópski fjárfestingabankinn fjármögnuðu gerð skýrslunnar.

Norræna ráðherranefndin mun verða með sýningarbás á ráðstefnu BDF dagana 1. – 2. júní. Þar verður tekið viðtal við þá Matti Vanhanen forsætisráðherra Finnlands og Uffe Ellemann Jensen fyrrum utanríkisráðherra Danmerkur og nú formann BDF, miðvikudaginn 2. júní.

Á sýningarbásnum verður einnig kynnt verkefni Norðurlanda í æðri menntun í Hvíta-Rússlandi. Hvernig er að vera námsmaður í útlegð í háskólanum European Humanities University (EHU) í Vilníus? Og hvers vegna EHU leitar nú eftir stuðningsaðilum í alþjóðasamfélaginu? Svör við þessum spurningum fást í norræna sýningarbásnum þriðjudaginn 1. júní kl. 11.30. Þar standa fyrir svörum einn af námsmönnum EHU og Dan Davidson fulltrúi stjórnar EHU.

Lene Espersen utanríkisráðherra Danmerkur tekur þátt í ráðstefnunni og reiknað er með að húnheimsæki sýningarbás Norrænu ráðherranefndarinnar. Danmörk fer með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni 2010.


Nánar um námstefnu EHU í tengslum við BDF

Tengiliðir

Silje Bergum Kinsten
Sími +45 33 96 02 51
Tölvupóstur siki@norden.org

Tengt efni