Document Actions

Baráttan um Norðurskautssvæðið

Ísinn bráðnar og skipaumferð eykst. Loftslagið breytist og aðsókn eykst í að nýta náttúruauðlindir. En hvert stefnir Norðurskautssvæðið og hvaða hlutverki gegna norrænu ríkin í kapphlaupinu um miðnætursólina?

09/06 2011
Grönland
Ljósmyndari
Grønland

Í júníútgáfu Analys Norden er kastljósinu beint að Norðurskautssvæðinu og utanríkisráðherrafundi Norðurskautsráðsins í maí fylgt eftir. Fjallað er um hlutverk norrænu ríkjanna í uppbyggingu á nyrsta hjara heims.

Svíar tóku við formennsku í Norðurskautsráðinu af Dönum í Nuuk þann 12. maí, en þar áður gengdu Norðmenn formennsku. Finnar vinna að því að koma á fót ESB-Norðurskautsmiðstöð í Rovaniemi og Íslendingar eru eðlilega einnig virkir þátttakendur í uppbyggingu á norðurslóð.

Öll norrænu ríkin fimm taka því þátt í að móta framtíð Norðurskautssvæðisins. Norræna ráðherranefndin er einnig virk, meðal annars hefur hún staðið fyrir útgáfu umfangsmikillar rannsóknarskýrslu, Megatrends, þar sem lagt er fram mat á framtíð norðurslóða til lengri tíma litið.

Ráðherranefndin og Norðurlandaráð standa einnig fyrir tveimur ráðstefnum á i Færeyjum í samstarfi við NORA þegar júníútgáfa Analys Norden kemur út. Önnur þeirra fjallar um grænan hagvöxt og sjálfbært fiskeldi, og hin um öryggi á sjó.

Nánar um hlutverk norrænu ríkjanna á Norðurskautssvæðinu í júníútgáfu Analys Norden.

Tengiliðir

Michael Funch
Sími +45 33960332
Tölvupóstur mifu@norden.org

Tengt efni
  • Heimskautssvæðið (Samstarfssvæði)
  • Norðurskautsmiðstöð gæti styrkt stöðu ESB á norðurslóð (News Item)

    Tillaga um að ESB setji á stofn Norðurskautsmiðstöð gæti styrkt stöðu sambandsins á norðurslóð. Hugmyndin kemur í kjölfar námstefnu æðstu embættismanna um tengsl ESB og Norðurlanda við norðurskautssvæðin sem haldin var í Brussel 8. apríl. Miðstöðin sem um ræðir yrði staðsett í Finnlandi. Framkvæmdastjórn ESB lýsti á námstefnunni áhuga á áframhaldandi samstarfi við Norrænu ráðherranefndina um málefni norðurskautsins.

  • Norðurlandaráð blandar sér í makríldeildu Norður-Atlantshafsríkjanna (News Item)

    ESB og Norðmenn eiga í útistöðum við Íslendinga og Færeyinga um fiskveiðiheimildir í Norður-Atlantshafi. Á janúarfundi Norðurlandaráðs þann 26. janúar hvatti umhverfisnefnd ráðsins alla aðila málsins til að setjast að samningaborði og finna lausn, sem tryggir sjálfbæra nýtingu makrílstofnsins, en veiðar á honum skapa milljarða verðmæti á hverju ári.

  • Arktisk Råd: Balance mellem kommerciel udvikling og beskyttelse af miljøet i Arktis? (News Item)

    På Arktisk Råds møder i Nuuk sidste uge lancerede både Nordisk Ministerråd og flere af medlemsstaterne ny forskning, som fokuserer på en region i udvikling, men også i fare.