Benedikt Erlingsson og Friðrik Þór Friðriksson hlutu Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir myndina „Hross í oss“

29.10.14 | Fréttir
Benedikt Erlingsson och Friðrik Þór Friðriksson
Photographer
Magnus Fröderberg/norden.org
Benedikt Erlingsson, leikstjóri og handritshöfundur, og Friðrik Þór Friðriksson framleiðandi tóku á móti Kvikmyndaverðlaunum Norðurlandaráðs 2014 fyrir myndina „Hross í oss“ við verðlaunaafhendingu Norðurlandaráðs í Stokkhólmi.

Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs nema 350 þúsundum danskra króna. Þau voru afhent af verðlaunahafa síðasta árs, Sisse Graum Jørgensen, í ráðhúsinu í Stokkhólmi. Hún las jafnframt upp rökstuðning dómnefndarinnar:

Rökstuðningur

„Hross í oss“ er sérlega frumleg mynd með rætur í kjarnyrtum húmor Íslendingasagnanna. Hún fjallar um um þau sterku bönd sem eru á milli manna og náttúrunnar. Kjarni samtvinnaðra frásagna myndarinnar er eilíf barátta mannsins við að beisla náttúruna og hvernig það misheppnast á aumkunarverðan hátt, oft með hrikalegum afleiðingum.

Leikstjórinn hefur djúpan skilning á frumkröftum hrossa og manna. Með því að nota augnaráð skepnu sem eitt helsta sjónarhornið til að endurspegla grátbroslega hegðun manna fær „Hross í oss“ sérstæðan ljóðrænan blæ en líka svartan, spaugsaman tón.

Benedikt Erlingsson leikstjóri fléttar saman kraftmikið myndmál, klippingu og tónlist þannig að myndin sjálf verður eins og náttúruafl.