Dagfinn Høybråten nýr framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar hefur fengið það verkefni að skoða skilvirkni norræna ráðherrasamstarfsins. Verkefnið fékk hann á fundi norrænu samstarfsnefndarinnar (NSK) fimmtudaginn 18. apríl.
Með nýjan framkvæmdastjóra við stýrið og framtíðarsýn sem felur í sér mikinn sparnað er ástæða til að skoða verkefnin með tilliti til þess hvað má bæta. Þörfin á breytingum og endurnýjun verður enn brýnni þar sem samstarfsráðherrarnir ákváðu að niðurskurður yrði 5% árið 2014.
„Flókin uppbygging norræna tengslanetsins og mikill fjöldi þátttakenda flækir starfið, og ég er ánægður með það umboð sem ég hef nú fengið til að skoða betur hvernig skipulag og vinnulag geti bætt skilvirkni. Hægt er að segja að málið snúist um endurbætur, endurnýjun, einföldun og eflingu starfs okkar", segir Dagfinn Høybråten.
Hann telur einnig að eitthvað sé til í því að ákveðin tregða felist í norræna kerfinu og að metnað eigi að leggja í að koma þeirri þekkingu sem verður til í norræna samstarfinu á framfæri innan pólitíska samstarfsins og stuðla að því að hún skapi norræn verðmæti fyrir borgarana og samfélagsþróunina.
Verkefnið á ekki að fjalla um breytingar á pólitíska ráðherranefndakerfinu, heldur um ákvarðanatöku og stjórnsýslu. Stærri heildarmynd og samstarf þvert á fagsvið eru mikilvæg mál. Vonir standa til að gerðar verði tillögur um styttri ferla, sem verði vænlegri til árangurs og auki pólitískt gildi.
„Það sem við gerum í Norrænu ráðherranefndinni á að stuðla að góðri og stundum nýrri norrænni pólitík", sagði Dagfinn Høybråten.
Þetta á einnig við um umfangsmikið norrænt verkefnasamstarf. Byggt á fyrra þróunarstarfi ættum við að geta bent á hugmyndir um hvernig verkefnissamstarfið geti betur stutt við pólitíska samstarfið á hverju ráðherrasviði fyrir sig. Árangur sem verður af verkefnavinnu ætti í auknum mæli að leiða af sér nýjar pólitískar áætlanir, segir hann.
Stjórnun norrænu stofnananna eru til umræðu í verkefninu eins og hlutverk, reglur og vinnulag við fjárlagagerðina. Miðað er að því að tillögur verði tilbúnar til pólitískrar umræðu í desember í ár.
Bodil Tingsby
Sími
+45 33 96 03 57
Tölvupóstur
bot@norden.org