Bjartsýni í aðdraganda kvikasilfursráðstefnu Sameinuðu þjóðanna
Fulltrúar allra þjóða heims hittast í Stokkhólmi í júní til að leggja grunn að alþjóðlegum samningi um notkun kvikasilfurs. Í dag eru engir bindandi alþjóðasamningar um notkun og losun kvikasilfurs sem er eitt hættulegasta eiturefni sem fyrirfinnst.
UNEP, umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna, samþykkti í fyrra að hefja samningaviðræður um alþjóðasáttmála. Norrænu ríkin hafa lengi verið virk í því ferli að koma á samningum og leika nú enn mikilvægara hlutverki.
Svíar eru gestgjafar fyrsta samningafundarins, en hundruð embættismenn, stjórnmálamenn og sérfræðingar sitja í Stokkhólmi dagana 7.-11. júní. Vonir standa til að fundurinn leiði til þess að samningar náist árið 2013.
- Þar er góð tilfinning að fyrsti fundurinn skuli vera haldinn á Norðurlöndum. Við höfum lengi barist fyrir því að koma þessum viðræðum á, segir Andreas Carlgren, umhverfisráðherra Svíþjóðar.
Norræna ráðherranefndin, samstarfsvettvangur norrænu ríkisstjórnanna, fjármagnar ráðstefnuna. Halldór Ásgrímsson, framkvæmdastjóri ráðherranefndarinnar, er bjartsýnn í aðdraganda þessa sögulega samningafundar.
- Kvikasilfur er ógnun við heilsu okkar og umhverfi og koma þarf á bindandi samningum til þess að takmarka og í sumum tilfellum banna notkun þess. Ráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Stokkhólmi er fyrsta skrefið í þá átt að koma á bindandi alþjóðlegum samningi, segir Halldór Ásgrímsson fyrrverandi forsætisráðherra.
Kvikasilfur í umhverfinu er alþjóðlegt vandamál þar sem slíkt eitur getur borist þúsundir kílómetra með vindum Þess vegna er þörf á að menn taki höndum saman óháð landamærum til að leysa þann vanda sem kvikasilfur veldur í umhverfinu.
Norðurlönd hafa, meðal annars á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar, markvisst stutt stjórnvaldsaðgerðir og efnahagslegan stuðning á alþjóðavettvangi í þeim tilgangi að draga úr þeim hættum sem fylgja notkun kvikasilfurs.
Tengiliðir
Anna Gran
Sími
+45 33 96 03 42
Tölvupóstur
ang@norden.org
