Blátt bann við sölu fíkniefna
Lögreglan í Kaupmannahöfn bað nýlega um undanþágu frá banni í Danmörku við sölu á fíkniefnum, til þess að stemma stigu við aukinni sölu í höfuðborginni. Viðbrögð við hugmyndinni komu alls staðar að, einnig frá öðrum ríkjum, og Svíin Hans Wallmark (m) svaraði með því að krefjast þess að Norðurlöndin yrðu fíkniefnalaust svæði. Rætt var um fíkniefnalöggjöf á Norðurlandaráðsþingi þriðjudaginn 27. október.
Hans Wallmark telur að Norðurlönd standi framar Evrópu í baráttunni gegn verslun með fíkniefni og meðferð fíkla
- Ljósmyndari
- Magnus Fröderberg/norden.org
„Möguleg lögleiðing, tímabundin eða varanleg, á litlu eða stóru svæði, hefur mikil áhrif einnig í Suður-Svíþjóð“, Wallmark í dagblaðið Kvällsposten þann 12. október. „Þegar í dag geta þeir sem berjast gegn fíkniefnum vitnað um hvers konar mistöð Kaupmannahöfn er. Mögulegt er að þeir sem nota fíkniefni í miklu magni hafi byrjað neyslu sína þar“.
Wallmark bryddaði upp á máefninu á Norðurlandaráðsþingi í Stokkhólmi, þar sem borgara og neytendanefndin samþykkti „að norrænu ríkisstjórnirnar skuli vinna að því að blátt bann verði við verslun með fíkniefni á Norðurlöndum þar sem lögregla, tollgæsla og yfirvöld beita ólíkum aðferðum í baráttu sinni".
„Þetta er norrænt framlag til evrópskrar stefnu“, segir Wallmark um samþykktina. „Norðurlönd eru mjög framarlega í baráttunni gegn aukinn verslun með fíkniefni og hafa viðamikið öryggisnet til að aðstoða fíkla. Evrópa getur horft til Norðurlandanna í þessu tilliti“, segir hann.
Wallmark telur að samþykktin sýni mikilvægi þingmannasamkomu á Norðurlöndum, en myndi gjarnan vilja aukið eftirlit með samstarfi í Norrænu ráðherranefndinni, samstarfsvettvangi norrænu ríkisstjórnanna.
„Málefni eins og fólksflutningar, löggæsla,öryggismál og varnarmálbreytast hrattog krefjast þverþjóðlegrar stjórnunargetu. Mögulega hefði átt að setja viðauka við Helsinkisáttmálann til þess að hann næði einnig til þessara málefna“, segir hann.
Tengiliðir
Jens Maseng
jens@norden.no
