Document Actions

Boð á blaðamannafund: Óformlegur fundur forsætisráðherra og vinnumarkaðsfundur í Stokkhólmi

Dagana 15. og 16. maí halda norrænu forsætisráðherrarnir óformlegan fund í Stokkhólmi. Í tengslum við fundinn munu norrænir ráðherrar atvinnumála og leiðtogar sjálfstjórnarsvæðanna funda og ræða um hvernig fjölga megi ungu fólki á vinnumarkaði. Fundirnir eru liður í formennskudagskrá Svía sem fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni.

23/04 2013

Forsætisráðherrarnir munu ræða málefni sem eru á döfinni á hefðbundnum sumarfundi sínum. Í lok fundarins munu þeir taka þátt í vinnumarkaðsfundinum Fjölgum ungu fólki á vinnumarkaði sem haldinn verður 16. maí með þátttöku norrænu atvinnumálaráðherranna. Á fundinn er einnig boðið fulltrúum aðila vinnumarkaðarins, atvinnulífsins, ungu fólki frá Norðurlöndum, sérfræðingum og öðrum sem hafa þekkingu á stöðu ungs fólks á vinnumarkaði.

Rætt verður um hvernig koma má í veg fyrir að unga fólkið verði út undan, og augum verður sérstaklega beint að þeim hópum sem standa höllustum fæti á vinnumarkaði - til að mynda þeim sem minnsta menntun hafa, eru erlendir ríkisborgarar eða hafa verið atvinnulausir lengi. Í tengslum við fundinn verða kynnt dæmi sem gagnast hafa ungu fólki við að komast inn á vinnumarkaðinn á Norðurlöndum og þau rædd á vinnumarkaðsvettvangi fyrir ungt fólk.

Úr dagskrá (drög):

15. maí

13.30-14.30  Forsætisráðherrarnir heimsækja Norra Djurgårdsstaden (tækifæri til myndatöku).

14:30   Fjölmiðlar fá tækifæri til að taka viðtöl við forsætisráðherrana, Norra Djurgårdsstaden.

14:45   Óformlegur fundur forsætisráðherranna hefst.

16. maí

9.00     Hillevi Engström atvinnumálaráðherra setur fundinn.

10.15   Ræða Anders Borg fjármálaráðherra.

10.45   Pallborðsumræður með norrænu atvinnumálaráðherrunum.

13.40   Pallborðsumræður með norrænu forsætisráðherrunum.

14.20   Blaðamannafundur með norrænu forsætisráðherrunum.

Frekari upplýsingar um fundinn verða birtar á vefsíðunni www.regeringen.se/flerungaiarbete.

Skráning fjölmiðla er nauðsynleg í síðasta lagi 8. maí á þessu eyðublaði.

Tengiliðir

Heidi Orava
Sími +45 21 71 71 48
Tölvupóstur heor@norden.org

Markus Friberg
fjölmiðlafulltrúi, Fredrik Reinfeldt
+46 (0)70 261 30 84

Daniel Valiollahi
fjölmiðlafulltrúi, Fredrik Reinfeldt
+46 (0)72 225 45 47

Niklas Gillström
fjölmiðlafulltrúi, Hillevi Engström
+46 (0)72 520 66 33