Document Actions

Börn og unglingar eiga að læra meira um loftslagsmál

Þann 11. nóvember verður Norræni loftslagsdagurinn haldinn hátíðlegur með fjölmörgum viðburðum víða um Norðurlönd. Norrænu menntamálaráðherrarnir standa fyrir þessum degi sem á að vekja börn og unglinga til vitundar um leiðir til að sporna gegn loftslagavandanum.

11/11 2010
Skola

Norræni loftslagsdagurinn stuðlar að þátttöku barna og unglinga í lausn loftslagsvandans.

Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Þúsundir ungmenna tóku þátt í Norræna loftslagsdeginum í fyrra, og leystu verkefni með sms skilaboðum. Á þessu ári er heimsíða loftslagsdagsins, klimanorden.org, þungamiðja dagsins, en þar eru fjölmörg gagnvirk verkefni og verkefnahugmyndir.

Jafnframt tengist loftslagsdagurinn norrænu tungumálaátaki sem á að bæta þekkingu ungmenna á dönsku, norsku og sænsku. Þannig reynir einnig á tungumálakunnáttu nemenda þegar þeir fræðast um loftslagsmálin.

- Mér finnst Norræni loftslagsdagurinn vera gott dæmi um raunverulegt norrænt samstarf. Þessi hugmynd er stórkostleg. Hún samþættir fræðslu í raungreinum og notkun rafrænna miðla, svo og skandínavískra tungumála. Ég vona að margir skólar taki þátt í Norræna loftslagsdeginum, segir Tina Nedergaard, menntamálaráðherra Dana, sem leiðir norræna ríkisstjórnasamstarfið á menntasviði þetta árið.

Ráðherrarnir hittust mánudaginn 8.nóvember og voru sammála um að Norræni loftslagsdagurinn sé kominn til að vera.

 

Fjölmargar stofnanir halda daginn hátíðlegan. Tengslanetið ”Life science to classroom” stendur m.a. fyrir sameiginlegum viðburði í Danmörku, Svíþjóð og Noregi, þar sem nemendur fara út á sama tíma og mæla losun koltvísýrings á ýmsum stöðum og nota niðurstöðurnar í verkefnavinnu.

Háskólinn í Lundi stendur fyrir viðburði ásamt sveitarfélaginu og ungmennasamtökum bæjarins til þess að athuga hvor hægt sé að minnka losun gróðurhúsalofttegunda frá umferð yfir Eyrarsund. Hafnarháskóli mun leggja áherslu á hvernig best er að upplýsa nemendur í skólum um ástandið í loftslagsmálum

Menntamálaráðuneytið á Íslandi heldur ráðstefnu um loftslagsverkefni í skólum.
Finnski menntamálaráðherrann fer í heimsóknir í skóla og í Danmörku verður haldin ráðstefna í samvinnu við UNESCO, um menntun í sjálfbærri þróun, þar sem María krónprinsessa verður meðal gesta.

Nánari upplýsingar á klimanorden.org

Tengiliðir

Emelie Barbou des Places
Sími +45 29 69 29 38
Tölvupóstur emca@norden.org

Michael Funch
Sími +45 33960332
Tölvupóstur mifu@norden.org

Tengt efni
  • Norræna ráðherranefndin um menntun og rannsóknir (MR-U) (Samtök)

    Samstarfi norrænu ríkisstjórnanna um rannsóknir og menntun er stjórnað af norrænu ráðherrunum sem fara með málefni menntamála og rannsókna, saman mynda þeir MR-U. Ráðherranefndin vinnur að því að Norðurlöndin verði í fararbroddi hvað varðar þekkingu og samkeppnishæfni.

  • Menntun og rannsóknir
  • Þekking skólabarna könnuð á Norræna loftslagsdeginum (News Item)

    Í tilefni af Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn í desember, stendur Norræna ráðherranefndin fyrir sameiginlegum loftslagsdegi fyrir skólabörn á Norðurlöndum þann 11. nóvember. Nemendurnir taka þátt í því sem e.t.v verður stærsta sms-keppni í heimi og koma með tillögur um hvernig hægt er að leysa loftslagsvandann þar sem þeir búa.