Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2010
Þriðjudaginn 30. mars verður tilkynnt hver hlýtur Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2010.
Tilkynnt verður um verðlaunahafa bókmenntaverðlaunanna á fréttamannafundi sem haldin verður strax að loknum fundi dómnefndar í Helsinki.
Hvenær: 30. mars 2010 kl. 11.45 (09.45 íslenskum tíma)
Staður: Þinghúsið, Riksdagen, í Helsinki, Mannerheimvägen 30, Kabinett A 1.
Samtímis verða upplýsingar um verðlaunahafann birtar á vefsíðu Norðurlandaráðs: www.norden.org
Eftirfarandi verk eru tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2010:
Frá Danmörku:
Peter Laugesen, Fotorama
Ida Jessen, Børnene
Frá Finnlandi:
Sofi Oksanen, Puhdistus
Monika Fagerholm, Glitterscenen
Frá Íslandi:
Einar Kárason, Ofsi
Steinar Bragi, Konur
Frá Noregi:
Karl Ove Knausgård, Min kamp1
Tomas Espedal, Imot kunsten
Frá Svíþjóð:
Steve Sem-Sandberg, De fattiga i Łódź
Ann Jäderlund, Vad hjälper det en människa om hon häller rent vatten över sig i alla sina dagar
Frá Færeyjum
Gunnar Hoydal, Í havsins hjarta
Engar tilnefningar bárust frá Grænlandi né á samískum tungumálum árið 2010.
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs eru 350.000 danskar krónur. Afhending verðlaunana fer fram á Norðurlandaráðsþinginu í Reykjavík í byrjun nóvember 2010.
Tengiliðir
Eva Smekal
Sími
+46 8 786 5049
Tölvupóstur
eva.smekal@riksdagen.se
Jesper F. Schou-Knudsen
Sími
+45 33 96 03 55
Tölvupóstur
jsk@norden.org
