Document Actions

Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2012

Allra augu munu beinast að Reykajvík þegar bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs verða afhent fimmtudaginn 22. mars. Upplýst verður hver hlýtur verðlaunin á athöfninni sem hefst klukkan 19.00 að staðartíma.

17/02 2012
Nordiska rådets litteraturpris 50 år
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Verðlaunaafhendingin verður send út beint á vefsetrinu norden.org. Strax að lokinni athöfn verður blaðamannafundur með verðlaunahafanum.

Verðlaunin hafa áður verið afhent á Norðurlandaráðsþingi á haustin. Í þetta sinn verða þau afhent í tengslum við fundi Norðurlandaráðs og þemaþing þess um Norðurskautið dagana 21.-23. mars.

Blaðamenn sem ætla auk verðlaunaafhendingarinnar að fylgjast með þemaþinginu í Alþingishúsinu þann 23. mars kl. 9.00-11.30 eru beðnir að skrá sig í síðasta lagi þann 20. mars (tengiliður neðar).

Kynningareintök af þeim verkum sem tilnefnd eru til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2012 er hægt að nálgast hjá útgefendum. Hafa samband við útgefendur.  

Tengiliðir

Jesper F. Schou-Knudsen
Sími +45 33 96 03 55
Tölvupóstur jsk@norden.org

Heidi Orava
Sími +45 33 96 04 60
Tölvupóstur heor@norden.org

Tengt efni
  • Dómnefnd bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs (Samtök)
  • Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs

    Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs hafa verið veitt allt frá árinu 1962, þau eru veitt fyrir fagurbókmenntir sem ritaðar eru á norrænu tungumáli. Það geta verið skáldsögur, leikrit, ljóða-, smásagna- eða ritgerðasöfn og önnur bókmenntaverk. Markmið verðlaunaveitingarinnar er að auka áhuga Norðurlandabúa á bókmenntum og tungumáli nágrannalandanna og á sameiginlegri menningararfleifð Norðurlanda.

  • Tilnefndir 2012

    Þeir sem tilnefndir eru til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2012-2011.