Document Actions

Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fimmtug

Á þessu ári er hálf öld liðin frá því að stofnað var til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Haldið verður upp á þau tímamót með nýrri heimasíðu, farandsýningu og venjubundinni verðlaunaafhendingu. Bókmenntaverðlaunin sem eru meðal þeirra merkustu á Norðurlöndum vekja enn athygli á menningu og tungumálum grannríkja okkar.

15/03 2011
Nordiska rådets litteraturpris 50 år
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Afmælishátíð bókmenntaverðlaunanna hefst í dag, með opnun nýrrar vefsíðu þar sem stiklað verður á stóru um norrænar bókmenntir.

Á síðunni geta gestir lesið ýmis textabrot, skoðað myndir og myndskeið af verðlaunahöfum og kynnt sér tölfræði frá því verðlaunin voru fyrst veitt árið 1962 og fram til dagsins í dag.

Veistu t.d. hversu margar skáldkonur hafa fengið verðlaunin í gegnum tíðina? Svarið er á vefsíðu bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.

Á árinu verður einnig sett upp farandsýning um bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs og verður hún sett upp í París, Leipzig og Ósló í mars og apríl.

Á sýningunni geta gestir kynnst afmælisbarninu betur og fræðst um verðlaunahöfunda og verk þeirra.

Þann 12. apríl hittast tilnefndir höfundar í Ósló þar sem tekin verður ákvörðun um hver hlýtur bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs að þessu sinni. Bókmenntaverðlaunin nema 350 þúsundum danskra króna.

Tengiliðir

Jesper F. Schou-Knudsen
Sími +45 33 96 03 55
Tölvupóstur jsk@norden.org

Tengt efni
  • Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs

    Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs hafa verið veitt allt frá árinu 1962, þau eru veitt fyrir fagurbókmenntir sem ritaðar eru á norrænu tungumáli. Það geta verið skáldsögur, leikrit, ljóða-, smásagna- eða ritgerðasöfn og önnur bókmenntaverk. Markmið verðlaunaveitingarinnar er að auka áhuga Norðurlandabúa á bókmenntum og tungumáli nágrannalandanna og á sameiginlegri menningararfleifð Norðurlanda.

  • Bókmenntaviðburðurinn „Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs - 50 ára" í Bókmenntahúsinu í Ósló. (Event)

    Hálf öld er síðan stofnað var til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Haldið verður upp á afmælið með norrænu bókmenntakveldi í Bókmenntahúsinu. Þrír handhafa verðlaunanna; Herbjørg Wassmo, Einar Már Gudmundsson og Eva Ström, ásamt Geir Berdahl útgáfustjóra hjá Oktober Forlag, munu ræða við Annette Orre blaðamann og útgáfustjóra, um skoðanir sínar á norrænum bókmenntum og mikilsmetin norræn bókmenntaverðlaun. Steinar Raknes flytur tónlist.

  • Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í Salon du Livre í París. (Event)

    Fyrrverandi vinningshafar Bókmennaverðlauna Norðurlandaráðs taka þátt í norrænni dagskrá með upplestri og viðtölum á frönsku bókasýningunni..