Í hvaða háskólum á Norðurlöndum eru stundaðar rannsóknir í faraldsfræðum? Hvernig fæ ég yfirlit yfir norræna háskóla með sérstaka alþjóðlega áherslu á Norður-Afríku? Á þessu ári verður hægt að bera saman æðri menntun á Norðurlöndum þökk sé U-map, ESB-skráningarverkefnis sem Norræna ráðherraefndin tekur þátt í.
Alls er gert ráð fyrir að nær 150 æðri menntastofnanir á Norðurlöndum muni taka þátt í norræna skráningarverkefninu, en í það verður síðan bætt upplýsingum frá U-map verkefnum sem unnin hafa verið í Evrópu undanfarin ár.
„Norræna ráðherraefndin telur að aukið gegnsæi á sviði æðri menntunar sé mikilvægt bæði fyrir alþjóðlegan samanburð og hvað varðar sýnileika norrænnar menntunar á alþjóðvettvangi. Þess vegna hvetjum við allar viðkomandi stofnanir að taka þátt í skráningarverkefninu”, segir Halldór Ásgrímsson, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.
Frá og með september verður hægt að skoða U-map skráningar norrænna stofnana og bera saman háskóla á Norðurlöndum og í Evrópu á vefsíðunni www.u-map.eu.
U-map verkefnið hófst árið 2005, en því hefur síðan verið breytt til þess að fylgja stefnu sem mörkuð hefur verið í evrópska rannsóknasvæðinu ERA og á evrópska svæðinu um æðri menntun EHEA, sem kynnt var um leið og Bolognaferlið. Hingað til hafa um 250 stofnanir skráð sig á U-map.
Monika Mörtberg Backlund
Sími
+45 29 69 29 75
Tölvupóstur
momb@norden.org
Heidi Orava
Sími
+45 21 71 71 48
Tölvupóstur
heor@norden.org