Breiður þingmannastuðningur við lýðræðisuppbyggingu í Hvíta-Rússlandi
Samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna og umræður við Hvíta-Rússland er veigamikið verkefni í alþjóðlegu starfi Norðurlandaráðs. Þingmenn í Norðurlandaráði fylkja sér um ákvörðun ráðsins um stuðning við hvít-rússneska háskólann, EHU, sem er í útlegð í Vilníus.
„Við vonum að Hvíta-Rússland verði í framtíðinni hluti af evrópsku lýðræðisfjölskyldunni með aðild að evrópska mannréttindasáttmálanum“, segir Helgi Hjörvar forseti Norðurlandaráðs.
- Ljósmyndari
- Johannes Jansson/norden.org
„Norrænn stuðningur við European Humanities University (EHU) háskólann er samtímis stuðningur við lýðræðisuppbyggingu í Hvíta-Rússlandi.“ Norðurlandaráð telur mjög mikilvægt að styðja lýðræðisuppbyggingu á grannsvæðunum. „Við vonum að Hvíta-Rússland verði í framtíðinni hluti af evrópsku lýðræðisfjölskyldunni með aðild að evrópska mannréttindasáttmálanum“, segir Helgi Hjörvar forseti Norðurlandaráðs.
Helgi heimsækir EHU háskólann, sem er í útlegð í Vilníus, fimmtudaginn 18. febrúar ásamt norrænu samstarfsráðherrunum og sendinefnd frá Norðurlandaráði. EHU er eini hvít-rússneski háskólinn sem byggir á akademísku frelsi.
Miðvikudaginn 17. febrúar funda þingmenn Norðurlandaráðs og Eystrasaltsráðsins í Vilníus í Litháen.
„Starfið við lýðræðisuppbyggingu í Eistlandi, Lettlandi og Litháen eftir fall múrsins hefur verið eitt raunhæfasta, tímabærasta og mikilvægasta verkefni sem unnið hefur verið á vegum Norðurlandaráðs. Starfið hefur leitt af sér góð sambönd bæði við ríkisstjórnir og þingmenn“, segir Helgi Hjörvar forseti Norðurlandaráðs.
Forsætisnefnd Norðurlandaráðs fundar einnig með norrænu samstarfsráðherrunum í Vilníus. Reiknað er með að samstarfsráðherrarnir muni ræða um áframhaldandi fjárhagsstuðning við EHU háskólann í útlegð.
Í mars munu þingmenn Norðurlandaráðs og Eystrasaltsráðs funda með fulltrúum hvít-rússnenskra stjórnar- og stjórnarandstöðuflokka í Minsk. Þetta er einstakur viðræðuvettvangur sem Norðurlandaráð og Eystrasaltsríkin hafa byggt upp á undanförnum árum.
Nánar um alþjóðlegt samstarf Norðurlandaráðs
Styrktarsjóður EHU
Myndband um EHU
Tengiliðir
Silje Bergum Kinsten, upplýsingaráðgjafi, sími: +45 21 71 71 56
