Document Actions

Brottkast á fiski er forkastanlegt athæfi

Sjómenn í ESB kasta árlega gífurlegu magni af fiski í hafið. Brottkastið er ámælisvert bæði frá siðferðilegu og umhverfislegu sjónarmiði og einnig ef litið er til stofnstærðar. Þetta er eitt af þeim vandamálum sem verður að taka á á nú þegar verið er að endurskoða fiskveiðistefnu ESB.

26/01 2010
Fisk
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Þetta skrifa tveir þingmenn í Norðurlandaráði í greins sem birtist í dagblöðum í Svíþjóð og Danmörku. Höfundar hennar eru sænska þingkonan Ann-Kristine Johansson og Kristen Touborg sem situr á danska þinginu. Johansson er formaður og Touborg varafomaður umhverfis- og auðlindanefndar Norðurlandaráðs.

Samkvæmt áætlun á endurskoðuð fiskveiðistefna ESB að taka gildi árið 2013. Johansson og Touborg segja að á Norðurlöndum búi fikveiðiþjóðir með sterkar hefðir.

-Við eigum mörg góð fiskveiðistjórnunarkerfi sem ESB gæti nýtt sér við endurskoðun fiskveiðistefnu sinnar. Til dæmis við ákvörðun á fjölda sóknardaga á hvert skip, veiðiheimildir, lágmarksstærð afla eða þegar banna á veiðar á ákveðnum svæðum á hrygningartíma, segja þingmennirnir.

Norðurlandaráð heldur vetrarfund sinn í Kaupmannahöfn dagana 26.-27.janúar. Umhverfisnefnd ráðsins stendur fyrir málþingi í danska þinginu miðvikudaginn 27.janúar, um endurskoðun á fiskveiðistefnu ESB,

Lesa greinina í dagblaðinu Wermlandstidningen