Brýnt er að gera alþjóðasamninga um skipaumferð um norðvesturleiðina.
John Baird samgönguráðherra Kanada hefur upplýst að frá og með 1. júlí í ár ætli Kanadamenn að setja reglur um skráningu allra skipa sem sigla svokallaða norðvesturleið norðan Grænlands. Norðurlandaráð mótmælir þessari aðgerð á hafsvæði, sem hefur verið í brennidepli í alþjóðlegu samstarfi Norðurlanda.
Skráningarreglurnar, sem Kanada leggur til, eiga að gilda jafnt um kanadísk skip og skip frá öðrum ríkjum. Engu að síður eru þetta óásættanlegar aðgerðir sem varða stjórnun alþjóðlegra siglinga, segir Niels Sindal, formaður dönsku sendinefndarinnar í Norðurlandaráði.
Ákvörðun Kanadamanna er tekin í kjölfar viðræðna undanfarinna ára um réttindi til hráefnanýtingu og siglinga á Norðurskautssvæðunum. Kanadamenn hafa skilgreint norðvesturleiðina innan kanadískrar landhelgi. Reiknað er með að þessi siglinbgaleið veri opin nær allt árið sem afleiðing loftslagsbreytinganna og að þar með muni siglingaleiðin milli Evrópu og Asíu styttast til mikilla muna.
„Miklu skiptir að settar verði reglur um norðvesturleiðina með alþjóðlegum samningum sem gerðir yrðu fyrir tilstilliAlþjóðasiglingamálastofnunarinnar. Það myndi tryggja samstarf þeirra ríkja sem hagsmuna eiga að gæta á vettvangi Sameinðuðu þjóðanna", segir Niels Sindal.
IMO, Alþjóðasiglingamálastofnunin, fer með málefni alþjóðlegra siglingaleiða á vegum Sameinuðu þjóðanna. Norðurlandaráð hefur í mörg ár unnið að því að tryggja að tekið verði á málefnum Norðurkautssvæðisins með alþjóðlegum samnngum, segir Sindal.
„Norðvesturleiðin er alþjóðleg siglingaleið. Öryggi á þessari siglingaleið verður sífellt mikilvægari því umferð um hana mun aukast hratt. Umferð stórra skemmtiferðaskipa við Grænland hefur til að mynda aukist verulega undanfarin ár.
Þegar öllu er á botninn hvolft, skipta peningar mestu máli.
„Kanada eins og önnur ríki við norðurskautið reynir nú að skapa sér sess í samningaviðræðum sem væntanlega hefjast eftir árið 2014, um rétt til landgrunns á norðurskautssvæðinu og þar með aðgengi að vinnslu náttúruauðlinda á svæðinu", segir Niels Sindal, en hann mun taka málið upp á næsta fundi Norðurlandaráðs í apríl.
Tengiliður:
Niels Sindal, MF, Jafnaðarmannaflokknum
Formaður sendinefndar Danmerkur í Norðurlandaráði og fulltrúi í nefnd norðurskautsþingmanna
Tlf. 33 37 40 19
