Dagfinn Høybråten tók við stöðu framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar þann 4. mars 2013. Hann tekur við af Halldóri Ásgrímssyni sem hefur verið framkvæmdastjóri undanfarin sex ár. Høybråten tekur við stöðunni og segist leggja metnað í að þróa og efla norræna samstarfið: Möguleikarnir í norræna samstarfinu eru miklu fleiri en þeir sem við nýtum í dag. Ég hlakka til, sem framkvæmdastjóri, að leggja mitt af mörkum til að nýta þessa möguleika.
Dagfinn Høybråten, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar 2013.
Eftir að hafa verið yfirlýstur áhugamaður um norrænt samstarf alla ævi, er fyrrum þingmaðurinn Dagfinn Høybråten frá Noregi loks kominn í stöðu í hjarta norræna samstarfsins.
„Norrænt samstarf snertir nær alla í daglegum störfum. Framtíðarsýnin í Helsinki-sáttmálanum um jafnan rétt norrænna borgara er enn mikilvægur. Ráðherranefndin hefur sett af stað umræðu um framtíðarsýn samstarfsins. Jafnframt hefur ráðherranefndin gefið til kynna að hluti af mínu verkefni sem framkvæmdastjóri eigi að vera að stuðla að því að gera norræna samstarfið árangursríkara og markvissara Þetta sýnir pólitískan vilja, sem ég ásamt öðru starfsfólki, vil vinna að því að framkvæma", segir Høybråten, sem alla starfsævina bæði sem stjórnmálamaður og embættismaður hefur látið sig hið norræna varða.
Viðtal við Høybråten hér: - Norden er en av trådene i livet mitt
Dagfinn Høybråten hefur verið stjórnmálamaður í rúmlega 30 ár og sat í 7 ár í ráðherranefndinni sem heilbrigðisráðherra, atvinnumálaráðherra og félagsmálaráðherra fyrir Kristilega þjóðarflokkinn . Eftir það var hann forseti Norðurlandaráðs 2007 - 2008. Auk þess hefur hann átt farsælan feril sem embættismaður og meðal annars framkvæmdastjóri norsku tryggingastofnunarinnar Trygdeetaten frá 1997 til 2004.
„Framkvæmdastjórastaðan er tengingin milli stjórnsýslunnar og stjórnmálanna, þannig að ég tel að reynsla mín frá báðum hliðum eigi eftir að nýtast hér. Ég veit hvernig pólitíska ferlið er og ég veit hvernig á að framkvæma hlutina. En það eru stjórnmálamennirnir sem eru ábyrgir fyrir úthlutun verkefnanna. Virðing fyrir stjórnmálamönnum og pólitík, er mér mikilvæg í hlutverki embættismanns", segir Dagfinn Høybråten, nýr framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.
Frøydis Johannessen
Sími
+45 21 71 71 44
Tölvupóstur
frjo@norden.org