Document Actions

Danir brjóta norræna samninga þegar þeir vísa fólki úr landi

Brottvísun norrænna ríkisborgara á félagsaðstoð veldur norrænum stjórnmálamönnum áhyggjum. Komið hefur í ljós að það eru nær eingöngu Danir sem vísa fólki úr landi.

14/04 2010
Ville Niinistö

„Það er áhyggjuefni að norrænu ríkin skuli ekki öll virða norræna samning nordiske lande overholder den nordiske konvention, og at nordiske statsborgere udvises fordi de har behov for sociale ydelser. Det er i strid med de nordiske regler, siger Niinistö.

Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Niinistö hefur þungar  áhyggjur af því að norrænum ríkisborgurum skuli vísað úr landi geti þeir ekki séð fyrir sér sjálfir.

„Á Norðurlöndum eigum við rétt á búsetu í grannríkjunum  nær því að vild. „Það er áhyggjuefni  að norrænu ríkin skuli ekki öll fara að norrænum samningum og að norrænum ríkisborgurum skuli vísað úr landi þurfi þeir á félagslegri aðstoð að halda.  Þetta er á skjön við norrænar reglur“, segir Niinistö.

Danski þingmaðurinn Hanne Agersnap (SF), fulltrúi í borgaranefndinni, gagnrýnir einnig þessar aðgerðir.

„Þetta hefur þróast á þann veg sem við getum ekki  sætt okkur við og sýnir að Dani skortir vilja til að samræma lög og reglur að norrænum samningum.“

Agersnap leggur áherslu á að láta kanna hvers vegna framkvæmdin er eins og hún er í Danmörku og að henni ætti að breyta þannig að Danir styddu við bakið á öðrum Norðurlandabúum.

Nýlega kom í ljós að tíu Norðurlandabúum hafði verið vísað úr landi í Danmörku á árinu 2009 vegna þess að þeir gátu ekki séð sér farborða.  Meðal þeirra  var vanfær norsk stúlka í  háskólanámi.

Borgara- og neytendanefndin sendi fyrirspurn til norrænu ríkisstjórnana í janúar um hvernig verkferlum væri háttað varðandi  vísunar norrænna ríkisborgara úr landi. Í svörunum kemur skýrt fram að sænsk og dönsk stjórnvöld  geta vísað norrænum ríkisborgurum úr landi ef þeir íþyngja samfélaginu félagslega. En í tölum kemur einungis fram að Danmörk nýti sér slík verkferli.

Ríkisstjórnir Finnlands, Íslands og Noregs segjast einvörðungu vísa fólki úr landi sem hlotið hefur dóm fyrir glæpsamlegt athæfi eða það ógni öryggi samfélagsins.

Borgaranefndin biður danska samstarfsráðherrann um nánari skýringar á ferlinu. Þetta kom fram á nefndarfundi sem var liður í aprílfundum Norðurlandaráðs í Ósló.

Útsending danska ríkisútvarpsins um fundina.

Fyrirspurn til ríkisstjórnar Danmerkur

Fyrirspurn til Norrænu ráðherranefndarinnar um norræna sáttmálann

Tengiliðir

Tina Bostrup
Sími +45 33 96 04 52
Tölvupóstur tib@norden.org

Silje Bergum Kinsten
Sími +45 33 96 02 51
Tölvupóstur siki@norden.org