Document Actions

Danir gagnrýna Norðurlandaráð æskunnar fyrir að velja að tala ensku

Norðurlandaráð æskunnar (UNR) hefur ákveðið að nota ensku sem vinnutungumál, þegar fulltrúar eiga í vandræðum með að skilja hvern annan á norrænu tungumálunum. Bertel Haarder menntamálaráðherra Danmerkur gagnrýnir ákvörðunina harðlega.

19/08 2008


Að nýta ensku sem vinnutungumál í Norðurlandaráði æskunnar gengur, að mati Bertel Haarder, í berhögg við norrænu tungumálayfirlýsinguna. „Það er algjörlega útilokað að þeir tali ensku á fundum sínum. Það gengur gegn hugmyndafræðinni um norrænt samstarf“, segir Haarder í viðtali sem birtist í danska dagblaðinu Politiken.
Hann telur því ekki að Norðurlandaráð æskunnar eigi rétt á opinberum styrkjum, velji ungu stjórnmálamennirnir að eiga samskipti á ensku í framtíðinni.
Lisbeth Sejer Gøtzsche forseti Norðurlandaráðs æskunnar, segir hins vegar að innihald samstarfsins og umræður hljóti að skipta mestu máli, ekki tungumálið sem notað er til tjáskipta.

Og þar sem skilningur á tungumálum grannríkjanna er ekki settur í forgang í kennslu á Norðurlöndunum, verður það sífellt mikilvægara fyrir unga fólkið að geta átt samskipti á ensku, eigi það að geta skilið hvort annað, segir Gøtzsche.

Jørn Lund prófessor í tungumálum og fulltrúi í Norræna tungumálaráðinu er henni ekki sammála. Tungumálið er mikilvægur liður í norrænni menningu og lykill að skilningi fremur en hindrun, segir hann.
Jørn Lund viðurkennir þó einnig að vandamálið byggi á því að kennslu í norrænum tungumálum hafi ekki verið nægilega sinnt undanfarin 25 ár, en það er þróun, sem að hans mati á að bæta fyrir með norrænu tungumálayfirlýsingunni.