Document Actions

Djarft teflt á Norðurskautssvæðinu

Sjávarútvegsstefna ESB og stjórnun Norðurskautssvæðisins hlaut mikla gagnrýni á Norðurlandaráðsþingi í dag.

28/10 2009
Katrín Jakobsdóttir

Katrín Jakobsdóttir samstarfsráðherra, talaði skýrt um sjávarútvegsstefnu ESB Norðurlandaráðsþingi.

Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

„Sjávarútvegsstefna ESB hefur lengi verið misheppnuð og því er það gleðilegt að ESB skuli nú endurskoða stefnu sína, sagði Katrín Jakobsdóttir samstarfsráðherra. Framkvæmdastjórn ESB kynnti þann 22. apríl grænbók sína um sameiginlega sjávarútvegsstefnu frá 1. janúar 2013.

„Fiskur er mikilvægur hluti fæðu nær hálfs milljarðs manna í Evrópu. Fiskur er og verður, eitt megin umfjöllunarefnum umhverfis- og auðlindanefndar Norðurlandaráðs“, sagði Svíinn Ann-Kristine Johansen talsmaður nefndarinnar.

Fiskur er einnig þema í áhættugreiningu sem Íslendingar áttu frumkvæði að á formennskuári sínu í Norrænu ráðherranefndinni. Áhættukortið byggir á upplýsingum sem safnað er um náttúruna og viðkvæm svæði sem geta verið í hættu, og einnig uppplýsingum um skipaumferð, og þar er auk þess áhættugreining og aðgerðaáætlanir fyrir hafsvæðin milli Noregs og Færeyja annars vegar og Íslands og Grænlands hins vegar. Almenn samstaða var í Norðurlandaráði um að slík greining væri tímabær.

„Maður þarf ekki að vera loftslagsvísndamaður til þess að sjá að eitthvað er að, dagði Daninn Niels Sindal. - Um það bil 50.000 manns munu heimsækja Grænland ár hvert í framtíðinni. Það eykur þörfina á viðbúnaði og öryggi. Öll Norðurlöndin hafa hag af norrænu samstarfi um þessi málefni í Norðurskautsráðinu“, bætti hann við.

Palle Christensen samstarfsráðherra Grænlands benti á mikilvægi rannsókna á áhættusvæðunum, og að því fylgdi aukið fjármagn til Norðurskautssamstarfsins , auk þess að Norðurskautssvæðið væri hluti af öndvegisrannsóknaáætluninni sem væri eitt af hnattvæðingarverkefnum Norrænu ráðherranefnarinnar.

„Um það bil 50.000 manns munu heimsækja Grænland ár hvert í framtíðinni. Það eykur þörfina á viðbúnaði og öryggi. Öll Norðurlöndin hafa hag af norrænu samstarfi um þessi málefni í Norðurskautsráðinu“, bætti hann við.

Tengiliðir

Jens Maseng
jens@norden.no