Dómsmálaráðherra: Danir virða enn vegabréfasamstarfið
Danska ríkisstjórnin leggur ríka áherslu á hreyfanleika fólks innan Norðurlanda, hvort heldur til gagns fyrir Norðurlandabúa eða til að efla samkeppnishæfni Norðurlanda. Þetta segir Morten Bødskov dómsmálaráðherra Dana í svari til Norðurlandaráðs, sem sendi dönskum stjórnvöldum fyrirspurn um hvort Danir virtu ekki lengur norrænt vegabréfasamstsarf eftir að upp kom atvik á landamærum á vordögum.
Sænskir fjölmiðlar bentu á það í mars s.l. að danska lögreglan hefði, þrátt fyrir vegabréfafrelsi, krafið farþega sem var á leið yfir Eyrarsundsbrúna um skilríki. Atvikið varð til þess að Hans Wallmark (M) í flokkahópi íhaldsmanna í Norðurlandaráði sendi skriflega fyrirspurn til dómsmálaráðuneytisins um það hvort Danir myndu í framtíðinni tryggja að farið væri að reglum norræna vegabréfasamstarfsins.
Samkvæmt svari dómsmálaráðuneytisins snerist málið um lögreglumann sem fór út fyrir valdsvið sitt. Fjallað var um tilkynningu vegna þessa atviks í ágúst 2011. Ákærandinn hafði þá rætt málið við dönsk lögregluyfirvöld og ákveðið að kæra ekki.
„Það leið nokkur tími áður en svarið barst, en ráðuneytið ítrekar að danskar reglur um þá sem koma til landsins og dvöl þar séu að sjálfsögðu í samræmi við norræna vegabréfasamkomulagið", segir Hans Wallmark.
Samkvæmt dönsku útlendingalögunum á útlendingur að veita þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru þannig að hægt sé að dæma um hvort hann dveljist löglega í landinu. Með tilvísun í þessi lög bendir dómsmálaráðuneytið á að lögregluyfirvöld eigi áfram rétt á að fara fram á að sjá skilríki leiki einhver vafi á því að viðkomandi dvelji ólöglega í landinu.
Samkvæmt lögum eiga útlendingar alltaf að hafa á sér vegabréf eða önnur skilríki þegar þeir fara yfir landamæri, dvelja þar eða ferðast á milli norrænna ríkja. Vegabréfasamstarfið felur í sér undantekningu fyrir norræna ríkisborgara sem ferðast milli Norðurlanda.
„Brottvísun innan ramma laganna"
Morten Bødskov dómsmálaráðherra ítrekaði aftur að ríkisstjórn Danmerkur virti frjálsa för Norðurlandabúa á milli landa, þegar hann tók þátt í fundi borgara- og neytendanefndar Norðurlandaráðs þann 1. nóvember. Jafnframt varði hann aðgerðir dönsku ríkisstjórnarinnar sem ekki hefur fylgt hefðbundnum reglum og vísað úr landi norrænum ríkisborgurum, sem þurfa á félagslegri aðstoð að halda.
„Ríkisstjórnin er meðvituð um að þær leiðir sem farnar eru, eru ekki í samræmi við það sem gert er annars staðar á Norðurlöndum, en þær brjóta samt sem áður ekki það samkomulag sem er í gildi er og heldur ekki ESB-reglur. Ríkisstjórnin vill gjarnan að þessi mál verði tekin til umræðu, þrátt fyrir að um mjög fá tilvik sé að ræða", sagði Bødskov.
Hans Wallmark fulltrúi í nefndinni telur jákvætt að dómsmálaráðherra vilji halda málinu vakandi, um leið og hann leggur áherslu á að fylgja verði eftir orðum með framkvæmd.
„Við fögnum því að dómsmálaráðherra skuli hafa komið á okkar fund og að hann er auk þess tilbúinn til að ræða málið, forveri hans í síðustu ríkisstjórn taldi „ekki þörf á" slíkri umræðu," sagði Wallmark.
„Danmörk heldur áfram að fylgja öðrum framkvæmdareglum, en spurningin er, hvers vegna ekki er hægt að fylgja norrænum hefðum þegar um svo fá tilvik er að ræða á ári. Vandamálið er ekki mjög stórt, en skiptir miklu máli sem stefna."
Tengiliðir
Heidi Orava
Sími
+45 33 96 04 60
Tölvupóstur
heor@norden.org
Jenny Pentler
Sími
+45 33 96 0445
Tölvupóstur
jepe@norden.org
