Ekki sjálfsagt að velja Norðurlönd
Per Unckel framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar benti á að Norðurlönd eiga undir högg að sækja í ræðu sinni á Norðurlandaráðsþingi æskunnar í Stokkhólmi um helgina.
-Við erum lítið málsvæði, við búum við kalt loftslag og þjóðirnar eru fámennar sagði Unckel og undirstrikaði nauðsyn þess að bæta upp þessi atriði. Hann nefndi þrjú málefni sem norrænt samstarf leggur áherslu á: að fjarlægja landamærahindranir milli Norðurlandanna, sameiginlegt átak á sviði vísindarannsókna og aukið samstarf á milli Norðurlandanna og Eystrasaltsþjóðanna.
Í spurningatíma svaraði framkvæmdastjórinn einnig spurningum varðandi tilraunir til að samræma afstöðu Norðurlandanna til áfengisskatta. Per Unckel er jákvæður hvað varðar tilraunir norrænu félagsmálaráðherranna til að auka samstarf um áfengisstefnu en telur einnig að Norðurlönd verði að taka afstöðu til nýrra tíma.
-Skattar á áfengi verða aldrei eins háir og innflutningskvótar aldrei eins litlir og við höfum áður verið vön á Norðurlöndum, sagði Unckel, og telur að löndin verði að taka ákvörðun um þessi mál hvert fyrir sig.
