Er tíminn kominn fyrir norrænt sambandsríki?
Hver er framtíð Norðurlandasamstarfsins? Hvernig má þróa norrænt ESB-samstarf? Miðflokkahópurinn í Norðurlandaráði fjallar um þessi mál og hefur boðað til umræðufundar í norska Stórþinginu, mánudaginn 12. apríl klukkan 14.
- Þingmannasamstarfið í Norðurlandaráði er mikilvægt verkfæri sem verður að uppfæra og þróa, segir Dagfinn Høybråten.
- Ljósmyndari
- Johannes Jansson/norden.org
- Öflugt norrænt ESB-samstarf er einn af hornsteinunum í endurnýjuðu og nútímalegra samstarfi norrænu þjóðþinganna, segir Bente Dahl (RV), formaður Miðflokkahópsins í Norðurlandaráði og þingmaður á danska þinginu.
Miðflokkahópurinn hefur boðið sænska þjóðfélagsrýninum og sagnfræðingnum Gunnari Wetterberg og Lars Hovbakke Sørensen frá háskólanum í Árósum til umræðufundar í Stórþinginu í Ósló. Markmið fundarins er að fá fram hugmyndir til að nota við stefnumótun.
Gunnar Wetterberg lagði til í umdeildri blaðagrein sem birtist í sænska dagblaðinu Dagens Nyheter, að stofnað yrði norrænt sambandsríki. Hann telur að slíkt sambandsríki muni hafa meiri efnahagslega þýðingu á alþjóðavettvangi, því Danmörk, Svíþjóð, Noregur, Finnland og Ísland gætu sameiginlega myndað 10. stærsta hagkerfi heims.
Lars Hovbakke Sørensen mun í framsöguerindi sínu leita svara við því hvernig norrænu ríkin geti betur samræmt stefnu sína innan ESB
- Þingmannasamstarfið í Norðurlandaráði er mikilvægur vettvangur sem þarf að endurnýja og þróa áfram. Endurskipuleggja verður Norðurlandaráð á þann hátt að það styrki nánari tengsl milli norrænu þjóðþinganna og hinna fjölmörgu nefnda þeirra, segir Dagfinn Høybråten (Krf) fulltrúi í Miðflokkahópnum og forsætisnefnd Norðurlandaráðs, en hann situr einnig fundinn.
Þingmenn frá öllum norrænu ríkjunum sitja fundinn sem haldinn er samhliða vorfundum Norðurlandaráðs í Ósló dagana 13.-14. apríl.
Viðburðurinn verður haldinn í Komitéhuset í Stórþinginu, Høringssal K-212, frá klukkan 14.00 mánudaginn 12. apríl.
Skráning
Aðeins skráðir þátttakendur geta setið fundinn. Sendið ósk um skráningu til Henrik Killianders á netfangið heki@norden.org
Tengiliðir
Terhi Tikkala
Sími
+358 9 432 2559
Tölvupóstur
terhi.tikkala@eduskunta.fi
Silje Bergum Kinsten
Sími
+45 33 96 02 51
Tölvupóstur
siki@norden.org
