"ESB ætti að banna brottkast á fiski"
Þúsundum tonna af afla er árlega kastað aftur í hafið vegna þeirra reglna sem gilda um evrópsk fiskveiðiskip. ESB verður að finna lausn á þeim vanda sem brottkastið veldur. Þetta skrifar Halldór Ásgrímsson, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar í grein sem birtist í norrænum og alþjóðlegum fjölmiðlum.
"Núgildandi reglur ESB veita sjómönnum lagalegan rétt til að kasta afla aftur í hafið auk þess sem löndunarbann er fyrir hendi á fisk sem veiddur er utan kvóta og undirmálsfisk. Við teljum að ESB ætti að íhuga bann við brottkasti, skrifar Halldór Ásgrímsson í greininni, sem birtist í EU Observer og Fishing News, norska blaðinu Fiskaren og Morgunblaðinu.
Hann bendir einnig á að Noregur, Ísland og Færeyjar hafi þegar sett reglur um bann við brottkasti. Það þýði í raun að öllum afla er landað. Í Danmörku er nú verið að gera tilraunir með myndbandsupptökur á fiskveiðiskipum til að koma í veg fyrir brottkast.
Framkvæmdastjórn ESB hefur viðurkennt að núverandi fiskveiðistefna sé misheppnuð. Verið er að endurskoða fiskveiðistefnu ESB og telur Halldór Ásgrímsson að nýta mætti fiskveiðistjórnunarkerfi norrænu ríkjanna við endurskoðunina.
"Fiskveiðistjórnun er ólík í norrænu ríkjunum, en í henni felast samt margar góðar lausnir. Það sýnir einnig staða norrænu ríkjanna sem eru efst á lista í alþjóðlegum samanburði", skrifar Halldór Ásgrímsson
ESB kynnti grænbók sína um endurskoðun á fiskveiðistefnunni síðast liðið vor og nú hefur Framkvæmdastjórnin auglýst eftir athugasemdum hagsmunaaðila. Norræna ráðherranefndin mun einnig skila inn athugasemdum við grænbókina. Auk þess er ráðherranefndin að gera samantekt á norrænum lausnum hvað varðar fiskveiðar, sem send verður til Evrópusambandsins. Ráðherranefndin hefur einnig tekið virkan þátt í endurskoðuninni, meðal annars með því að bjóða fulltrúm ESB á ráðstefnur um málið.
