Document Actions

ESB, Rússland, Noregur og Ísland taka upp nánara menningarsamstarf

Evrópusambandsríkin, Rússland, Noregur og Ísland hyggja á nánara menningarsamstarf eftir alþjóðlega ráðstefnu um þróun nýrra verkfæra fyrir menningarsamstarf í Norður-Evrópu. Háttsettir embættismenn frá ríkjunum munu undirrita viljayfirlýsingu þess efnis í Pétursborg 20.-21. maí.

18/05 2010

Á fundinum í Pétursborg kemur saman fólk sem er virkt í menningargeiranum, sköpunarfyrirtækjum, menningarstofnunum og einnig embættismenn frá 11 ríkjum. Þar verða ræddar  leiðir til að efla sköpunariðnað á Norður-Evrópusvæðinu sem Norðlæga víddin nær til.  Um þessar mundir fer fram umræða í öllum Evrópuríkjum um hvernig hægt er að aðlaga þessar hugmyndir og byggja upp  sköpunariðnað, sem  gæti skapað störf og stuðlað að velmegun,  en skortir fjármögnun og fjárfestingartækifæri.

The Northern Dimension Partnership on Culture (NDPC) er nýtt átaksverkefni fyrir Norður-Evrópu sem áætlað er að hefjist árið 2011. Meginmarkmið þess er að greiða fyrir aðgengi að fjármögnun til langtímaverkefna og gera fyrirtækjum kleift að skapa störf og verða sjálfbær. NDPC verður viðbót við núverandi samtök í hverju landi fyrir sig og á alþjóðavettvangi og stofnanir sem vinna að menningarsamstarfi og mannaskiptum og mun verkefnið verða vettvangur umræðna og miðlunar á bestu framkvæmd í menningargeiranum.

NDPC verður fjórða átaksverkefni Norðlægu víddarinnar, en fyrri verkefni fjölluðu um samstarf á sviði umhverfis-, félags- og samgöngumála. Norræna ráðherranefndin veitti aðstoð við undirbúning stofnunar NDPC og skipuleggur ráðstefnuna ásamt borgaryfirvöldum í Pétursborg og rússneska menningarmálaráðuneytinu.

Athöfn vegna undirritunar viljayfirlýsingarinnar um menningarsamstarf verður haldin á Ambassador Hotel þann 20. maí 2010 (10:00-12:00, Rimskogo-Korsakova pr., 5-7). Þátttakendur á blaðamannafundi (12:00-12:30, Premier hall) verða Andrey Busygin, aðstoðarmenningarmálaráðherra Rússlands, Michael Webb, varaformaður sendinefndar ESB í Rússlandi og háttsettir fulltrúar ESB-ríkjanna, Íslands og Noregs.

Skráning á athöfnina og blaðamannafundinn: Fyrir klukkan 17:00 þann 19. maí 2010,
Andrey Anisimov, upplýsingaskrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Pétursborg, sími (+7 812) 336-75-80, farsími: +7-812-949-09-46; netfang: aa@norden.ru

Nánari upplýsingar: www.norden.ru