Document Actions

ESB verðlaunar norrænt tungumálaverkefni

Stjórnandi tungumálaverkefnis Norrænu ráðherranefndarinnar "De Nordiske Sprogpiloter" hlaut nýlega tungumálaverðlaun ESB árið 2009. Lis Madsen verkefnisstjóri, hlýtur verðlaunin fyrir framlag sitt til eflingar norræns tungumálaskilnings.

26/10 2009
Språk

Markmiðið með verkefninu "De Nordiske Sprogpiloter" er að mennta norræna grunnskólakennara í því að kenna norræn tungumál sem grannþjóðatungumál og erlend tungumál, þannig að ungt fólk á Norðurlöndum geti áfram átt samskipti á skandínavísku tungumáli.

Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Ungt fólk á Norðurlöndum á sífellt erfiðara með að skilja hvert annað.

Nýtt norrænt verkefni, De Nordiske Sprogpiloter, á að bæta úr því vandamáli. Og verkefnið byrjaði svo vel að það vakti athygli í Brussel.

Markmið verkefnisins er að bæta úr brýnu vandamáli: Gagnkvæmum norrænum tungumálaskilningi.

„Verkefnið fjallar að hluta til um fjöltyngi og fjölbreytileika tungumálsins, og að hluta til um það að hefjatungumálakennslu snemma og þá sérstaklega um samstarf á milli þjóða”, segir Lis Madsen.

Norðurlandaráðsþing verður haldið í Stokkhólmi dagana 27.-29. október og þar munu ráðherrarnir greina frá stöðu Nordiske Sprogdeklaration, en markmið hennar er að auka málskilning á milli Norðurlandanna.

„Þar kemur verkefnið einnig við sögu, markmið þess er að taka á erfiðu vandamáli: Gagnkvæmum norrænum tungumálaskilningi”, segir Lis Madsen.

Hún hefur ásamt Per Ivar Vaagland, framkvæmdastjóra sjóðsins dansk-norskrar samvinnu, unnið að þróun De Nordisk Sprogpiloter og meðal annars unnið hugmynd að námskeiði, sem hefur nýst mjög vel í endurmenntun norræna grunnskólakennara.

Að kenna kennurum

Verkefnið Nordiske sprogpiloter hófst vorið 2007.

Markmiðið með verkefninu er að mennta norræna grunnskólakennara í því að kenna norræn tungumál sem grannþjóðatungumál og erlend tungumál, þannig að ungt fólk á Norðurlöndum geti áfram átt samskipti á skandínavísku tungumáli.

Markhópur verkefnisins er grunnskólakennarar á Norðurlöndum, sem jafnframt eru leiðbeinendur í verknámi fyrir kennaranema.

Tilraunaverkefninu lauk árið 2008, en ný námskeið verða haldin og aðferðir og námsefni þróað á tímabilinu 2009-2011.

Verkefnið er styrkt af Norrænu ráðherranefndinni, Norræna menningarsjóðnum og norrænu stofnununum: Sjóðnum um danskt-norskt samstarf og menntunarmiðstöðvunum Voksenåsen (Ósló) og Hanaholmen (Helsinki).

Hingað til hafa 59 kennarar útskrifast. Næstu 25 ljúka námi í nóvember 2009.

Tengiliðir

Hulda Zober Holm
Sími +45 33 96 03 76
Tölvupóstur hzh@norden.org