Document Actions

European Humanities University: Ný heimasíða fyrir styrktaraðila

Nú hefur útlagaháskólinn European Humanities University Trust Fund (EHU TF) fengið eigin heimasíðu. Á henni má finna upplýsingar um hvernig styrkja megi skólann og eins kynna sér ástandið í Hvíta-Rússlandi.

30/04 2009

starfræktur er í Vilníus, höfuðborg Litháen. Mikilvægasta fjáröflunarleið háskólans er styrktarsjóðurinn EHU Trust Fund, en hann er liður í því að tryggja hvítrússneskum námsmönnum aðgang að æðri menntun, óháð því hvaða stjórnmálaskoðanir þeir kunna að hafa.

Styrktaraðilar geta á heimasíðunni fengið upplýsingar um hvernig hægt er að styrkja háskólann og jafnframt kynnt sér ástandið í Hvíta-Rússlandi.

Markmiðið með EHU Trust Fund er að safna og sjá um fjárstyrki frá styrktaraðilum háskólans á meðan hann er starfræktur í Vilníus, en vonast er til að skólinn geti sjálfur fjármagnað sig í framtíðinni. Norræna ráðherranefndin sem hefur umsjón með styrktarsjóðnum.

European Humanities University var stofnað í Minsk höfuðborg Hvíta-Rússlands árið 1992. Árið 2004 var honum lokað af hvít-rússneskum stjórnvöldum og ári síðar flutti skólinn til Vilníus ásamt kennurum og nemendum.

EHU er eini hvít-rússneski háskólinn sem býður stúdentum upp á nám sem byggir á akademísku frelsi. Það er einnig eini einkarekni háskólinn í sögu Hvíta-Rússlands sem hefur haldið sjálfstæði sínu þrátt fyrir þrýsting frá stjórnvöldum.

Norræna ráðherranefndin hefur í samstarfi við framkvæmdastjórn Evrópusambandsins styrkt EHU í Vilníus frá árinu 2005. Sá stuðningur er mikilvægur þáttur í alþjóðastarfi Norðurlanda sem miðar að því að efla norræn grunngildi eins og lýðræði og tjáningarfrelsi.