Fagna hugmyndafrelsi á Capitol Hill
Námsmenn við hvítrússneska útlagaháskólann European Humanities University (EHU) reikna ekki með að hugmyndafrelsi sé sjálfsagður hlutur. Hugmyndafrelsi verður fagnað á Capitol Hill í Washington til að styrkja EHU, fimmtudaginn 3. desember.
- Við viljum gjarnan kynna EHU betur í USA. Styrktarsjóður skólans hefur þegið framlög frá bæði evrópskum og bandarískum aðilum. Samstarf þvert yfir Atlantshafið er mikilvægt til þess að tryggja víðtækan stuðning, sérstaklega þegar illa árar, segir Halldór Ásgrímsson, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.
Norræna ráðherranefndin og American Councils for International Education eru gestgjafar þegar hollvinir European Humanities University (EHU) og hugmyndafrelsis koma saman á Capitol Hill á fimmtudag. Aðalræðumaður verður Lloyd Axworthy, fyrrverandi forsætisráðherra Kanada.
Kvikmynd um European Humanities University (EHU)
Frá því EHU-háskólinn var stofnaður í Minsk 1992, hefur hann verið leiðandi í baráttunni fyrir hugmyndafrelsi í Hvíta-Rússlandi. Vegna þessarar baráttu, var háskólanum lokað af Lukasjenko forseta forseta árið 2004 og hann neyddist því að flytja starfsemina í útlegð til Vilníus í Litháen. Í dag er EHU eini valkosturinn við ríkisrekna háskóla í Hvíta-Rússlandi.
Vikuna eftir viðburðin á Capitol Hill, fer Halldór Ásgrímsson til Kanada, þar sem hann mun m.a. hitta Lawrence Cannon utnaríkisráðherra Kanada að máli. Eitt af umræðuefnum þeirra verður einmitt frekari fjárstuðningur við EHU.
EHU-skólinn er háður styrkjum frá alþjóðasamfélaginu og öðrum aðilum. ESB, fjölmargar evrópskar ríkisstjórnir, ríkisstjórn Bandaríkjanna, Norræna ráðherranefndin og einkareknir sjóðir styrkja nú skólann. Styrktarsjóður skólans er undir stjórn Norrænu ráðherranefndarinnar sem sér til þess að fjármögnunin sé gagnsæ og að því sé öruggt að leggja fram fé til skólans.
Tengiliðir
Silje Bergum Kinsten
Sími
+45 33 96 02 51
Tölvupóstur
siki@norden.org
