Fíkniefni meðal ungmenna
Hvernig réttlætir ungt fólk fyrir sjálfum sér og öðrum þegar það fer að nota fíkniefni? Hvað hefur áhrif á og stjórnar ákvörðun þeirra? Ritgerðasafnið Drugs and Youth Cultures - Global and Local Expressions fjallar um margvíslega menningarheima ungmenna og er markmiðið að sýna fíkniefnaneyslu sem hluta af reynsluheimi ungs fólks á Norðurlöndum.
Í mörgum hópum ungs fólks er litið á neyslu fíkniefna sem eðlilegan eða jafnvel mikilvægan hlut í frítímanum. Innan hópanna fyrirfinnast flóknar umgengnisreglur og gildismat sem munu reynast hindranir milli ungs fólks og þjóðfélagsins í heild sinni ef ekki fara fram rannsóknir á þeim.
Í ritgerðasafnið, sem er það fyrsta sinnar tegundar, skrifa vísindamenn frá Finnlandi, Svíþjóð, Danmörku og Noregi. Ritstjórar eru fil.dr. Philip Lalander (Svíþjóð) og pol.dr. Mikko Salasuo (Finnlandi). Í bókinni er meðal annars fjallað um:
• fíkniefnanotkun unglingahópa sem stunda teknó-dansstaði í Danmörku
• alsælumarkaðinn í Finnlandi
• fíkniefnamenningu meðal ungs fólks sem fer á puttanum eða með lestum um Evrópu
• götumenningu ungra innflytjenda frá Chile í Stokkhólmi
• umfjöllun finnskra unglingablaða um fíkniefna- og áfengisneyslu
• fíkniefnaneyslu í sænskum næturklúbbum
