Document Actions

Fimm magnaðar kvikmyndir keppa um kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2010

Kvikmyndin The Good Heart er framlag Íslands til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2010.

Aug 24, 2010

Fimm áhrifaríkar en jafnframt afar ólíkar norrænar kvikmyndir keppa um hin eftirsóttu kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs á þessi ári. Íslenski leikstjórinn og handritshöfundurinn Dagur Kári og framleiðendurnir Þór Sigurjónsson og Skúli Fr. Malmquist eru tilnefndir til verðlaunanna fyrir kvikmyndina The Good Heart og keppa við eina mynd frá hverju hinna norrænu ríkjanna: Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð.

Still fra filmen The Good Heart fra Island, nomineret til Nordisk Råds Filmpris 2010.

Úr íslensku kvikmyndinni The Good Heart som er tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2010.

Ljósmyndari
Zik Zak

 

Verðlaunin að andvirði 350.000 danskra króna eru veitt kvikmynd sem á rætur í norrænni menningu og býr yfir miklum listrænum gæðum. Kvikmyndin á einnig að sýna listræna nýsköpun og jafnframt þróa kvikmyndalistina með því að sameina hinar ýmsu hliðar hennar í sannfærandi og heilsteyptu verki.

Þær fimm kvikmyndir sem tilnefndar eru að þessu sinni eru:

THE GOOD HEART - Ísland Leikstjóri og handritshöfundur: Dagur Kári Framleiðendur:Þór Sigurjónsson, Skúli Fr. Malmquist

SUBMARINO - Danmörk Leikstjóri: Thomas Vinterberg Handritshöfundar:Thomas Vinterberg & Tobias Lindholm Framleiðandi: Morten Kaufmann

MIESTEN VUORO (STEAM OF LIFE) - Finnland Leikstjórar og handritshöfundar:Joonas Berghäll, Mika Hotakainen Framleiðandi:Joonas Berghäll

UPPERDOG - Noregur Leikstjóri og handritshöfundur:Sara Johnsen Framleiðendur:Christian Fredrik Martin & Asle Vatn

METROPIA - Svíþjóð Leikstjóri:Tarik Saleh Handritshöfundar:Stig Larsson, Fredrik Edin & Tarik Saleh Framleiðandi:Kristina Åberg

Fimm frábærar norrænar kvikmyndir sem sjá ætti í kvikmyndahúsi. – Þetta er í sjöunda sinn sem við veitum kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs og það er ánægjulegt að sjá að enn getum við státað af fimm mjög ólíkum myndum sem standast það besta í listrænum gæðum.

- Nýjar kvikmyndir eru framleiddar ár hvert og þrátt fyrir að málsvæði okkar sé lítið þá vekja þær mikla athygli bæði á Norðurlöndum og utan þeirra. Kvikmyndirnar sem tilnefndar eru í þetta sinn hafa verið sýndar á stórum alþjóðlegum kvikmyndahátíðum, s.s,í Berlín, Feneyjum og Toronto og dreifingarréttur á þeim hefur verið seldur til fjölmargra annarra landa. Þess vegna er einnig ánægjulegt að við getum aftur sýnt áhorfendum þessar fimm frábæru kvikmyndir í kvikmyndahúsum á Íslandi, í Danmörku, Noregi, Finnlandi og Svíþjóð þegar í haust, segir Hanne Palmquist, framkvæmdastjóri Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins, sem sér um verðlaunin fyrir Norðurlandaráð.

Í Reykjavík verða myndirnar sýndar í Háskólabíói þar sem norræn kvikmyndavika verður haldin dagana 29. október – 4. nóvember í samstarfi við Græna ljósið. Um kvikmyndaverðlaun Norðurlandarráðs Kvikmyndaverðlaunin, sem í fyrra komu í hlut danska leikstjórans Lars von Trier og framleiðandans Meta Louise Foldager fyrir kvikmyndina Antichrist, voru veitt í fyrsta sinn árið 2002 í tilefni af 50 ára afmæli Norðurlandaráðs. Þá var finnska kvikmyndin Maður án Fortíðar eftir Kaurismäki verðlaunuð. Síðan hafa verðlaunin verið veitt fyrir kvikmyndirnar Morðið (DK) árið 2005, Zozo (SV) árið 2006, Listin að gráta í kór (DK) árið 2007 og Þið lifendur (SV) árið 2008.

Kvikmyndirnar fimm, ein frá hverju landi, eru valdar af dómnefnd, en í henni sitja tveir fulltrúar frá hverju norrænu ríkjanna. Nú þegar tilkynnt hefur verið um þær fimm kvikmyndir sem til greina koma, hittist dómnefndin til þess að greiða atkvæði og ákveða verðlaunahafa ársins.Í dómnefnd þessa árs eru Anne Jerslev lektor (DK), Johanne Grönqvist ritstjóri (FI), Sif Gunnarsdóttir kvikmyndagagnrýnandi (IS), Le LD Nguyen kvikmyndagagnrýnandi (N) og Eva af Geijerstam kvikmyndagagnrýnandi (SV).

Tilkynnt verður um verðlaunahafa kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2010 miðvikudaginn 20. október og verðlaunin verða síðan afhent á Norðurlandaráðsþingi í Reykjavík miðvikudaginn 3. nóvember.

Auk kvikmyndaverðlaunanna veitir Norðurlandaráð ár hvert bókmenntaverðlaun, tónlistarverðlaun og umhverfisverðlaun. Markmiðið með þessum verðlaunum er að auka áhuga á bókmenntum, tungumálum, tónlist og kvikmyndum norrænu frændþjóðanna.

Upplýsingar um kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs  www.nordiskrådsfilmpris.com www.nordiskfilmogtvfond.com

Til ritstjórnar

Hlaða má niður brotum úr myndunum til kynningar á:

Ftp-server:  ftp.millenniumgroup.se
Username:  ncfp_press
Password:   ogyEjfbS
Port: 21

Tengiliðir

Hanne Palmquist
Sími +47 64 00 60 80
Tölvupóstur hanne@nftf.net

Jesper F. Schou-Knudsen
Sími +45 33 96 03 55
Tölvupóstur jsk@norden.org

Nánari upplýsingar um kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2010 veitir: Ísleifur B. Þórhallsson: si@greenlightfilms.is / 591-5140