Finnska skáldkonan Sofi Oksanen fær bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2010
Finnska skáldkonan Sofi Oksanen hlýtur Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2010 fyrir verkið Puhdistus (Hreinsun).
Með þriðju skáldsögu sinni sýnir Sofi Oksanen (fædd 1977) virkilega hvað í henni býr. Á ríkan og tjáningarfullan hátt fléttar hún hér saman frásögn um sögulega viðburði, hernám Sovétmanna í Eistlandi, og brennandi alþjóðlegt vandamál í samtímanum, mansal á Eystrasaltssvæðinu.
Í rökstuðningi dómnefndar segir:
„ Skáldsögu Sofi Oksanen Puhdistus ( Hreinsun) vindur fram á tvennum ólíkum tímum í Eistlandi, en þemu skáldsögunnar eru alls óháð tímanum; ást, svik, völd og valdleysi . Á hárfínan hátt lýsir Oksanen því hvernig sögulegir viðburðir geta leikið einstaklinginn og skráir um leið söguna hér og nú. "
Bókmenntaverðlaunin nema andvirði 350 þúsundum danskra króna. Þau verða afhent Norðurlandaráðsþingi í Reykjavík í lok október 2010. Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs hafa verið veitt frá árinu 1962.
Nánari upplýsingar:
Eva Smekal, ritari dómnefndar,
+46 70 671 0432 eva.smekal@riksdagen.se
Tengiliður fjölmiðla: Karin Arvidsson, deildarstjóri upplýsinga- og fjölmiðladeildar Norðurlandaráðs
+45 21 71 71 45 kaa@norden.org
