Fjalægjum landamæri milli Svíþjóðar og Noregs
Kent Olsson formaður flokkahóps íhaldsmanna í Norðurlandaráði leggur þetta til. Ken Olsson skrifar í grein í dagblaðinu Göteborgsposten að tími sé kominn til að auka sænsk-norska samstarfið og hefja afnám landamæra milli landanna.
Leggjum niður tollstöðvarnar og fellum niður reglur sem flækjast fyrir samgöngum og viðskiptum yfir landamærin.
Kent Olsson vill að það verði einfaldara, ódýrara og sveigjanlegra að ferðast á milli landa og hann vill afnema skrifræðið og gjöld sem hefta sameiginlegan vinnumarkað. Í greininni tekur hann dæmi af hversdagslegum landamærahindrunum sem gera einstaklingum og fyrirtækjum lífið erfiðara.
Bæði löndin hagnast á opnum landamærum og fríverslun þar sem við myndum fá frjálsan aðgang að markaði í báðum löndum. Það er engin ástæða til þess að það skuli vera erfiðara og dýrara að stunda verslun milli Uddevalla og Fredrikstad en á milli Uddevalla og Strömstad.
Rúmlega 50 norsk og sænsk sveitarfélög eiga sameiginleg landamæri.
