Document Actions

Fjallað verður um fiskveiðistefnu ESB og lífsgæði aldraðra á janúarfundum Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn

Fiskveiðistefna ESB, jafnréttismál og formennskuáætlun Dana í Norrænu ráðherranefndinni verða á dagskrá þingmanna í Norðurlandaráði þegar þeir funda dagana 26. - 27. janúar í Kaupmannahöfn.

21/01 2010
Vinter

Fulltrúar í Norðurlandaráði hittast í Kaupmannahöfn dagana 26.-27. janúar.

Ljósmyndari
Erik Christensen, Porkeri

Norðurlandaráð tekur virkan þátt í endurskoðun fiskveiðistefnu ESB og stendur fyrir námstefnu um hana í danska þinginu, Folketinget, miðvikudaginn 27. janúar. Þátttakendur verða fulltrúar á Evrópuþinginu, Framkvæmdastjórnar ESB og norrænir þingmenn. Árið 2009 sendi Norðurlandaráð tillögur að endurskoðun fiskveiðistefnunnar og mun Framkvæmdastjórnin vinna áfram að mótun hennar.

Þá mun danska ríkisstjórnin kynna formennskuáætlun Dana í Norrænu ráðherranefndinni, en auk þess verður fjallað um jafnréttismál á sameiginlegum fundi þann 26. janúar.

Velferðarnefnd Norðurlandaráðs, sem á árinu 2010 beinir sjónum að lífsgæðum eldri borgara á Norðurlöndum, sækir Heilbrigðis- og hjúkrunarstofnunin í Kaupmannahöfn heim, miðvikudaginn 27. janúar. Á Højdevang hjúkrunarheimilinu munu þingmennirnir kynna sér nýjungar í umönnun fólks með vitglöp, líkamsræktar- og þjálfunartilboð og tæknilegar velferðarlausnir.

Janúarfundirnir eru fyrstu fundir norrænna þingmanna á árinu, en árið 2010 stýra Íslendingar samstarfinu í ráðinu.

Nánar um þátttöku Norðurlandaráðs í mótun fiskveiðistefnu ESB

Tengiliðir

Silje Bergum Kinsten
Sími +45 33 96 02 51
Tölvupóstur siki@norden.org