Fjölmiðlanámstefna um sjálfbæra þróun
Sunnudaginn 31. október heldur Norræna ráðherranefndin fjölmiðlanámstefnu í Stokkhólmi um sjálfbæra þróun og nýja norræna framtíðarstefnu um þetta mikilvæga málefni. Sjálfbær þróun verður eitt af meginmálefnum sem stjórnmálamenn í Norðurlandaráði munu ræða á þingi Norðurlandaráðs, sem haldið verður í Stokkhólmi dagana 1. – 3. nóvember n.k. Umhverfis- og auðlindadeild ráðherranefndarinnar býður því til hádegisnámstefnu með fjölbreyttu efni fyrir fréttamenn sunnudaginn 31.október.
Per Uncel framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar mun opna námstefnuna og ræða norræna stefnumótun um sjálfbæra þróun. Hann spyr: Er þetta enn best geymda leyndarmál Norðurlandanna? Geta Norðurlöndin haft áhrif á alþjóðlega stefnumótun? Spyr Loa Bogason ráðgjafi, en hún er sérfræðingur ráðherranefndarinnar um sjálfbæra þróun. Harro Pitkänen, framkvæmdastjóri NEFCO, mun ræða um loftslagsbreytingar, Nils Petter Karlsson ráðgjafi hjá Norrænu ráðherranefndinni mun ræða um félagslegu víddina, Lise Lykke Steffensen mun ræða erfðaauðlindir í landbúnaði og skógrækt og Ásmundur Guðjónsson ráðgjafi mun ræða hvort sjálfbært fiskeldi sé raunverulegur möguleiki. Þar sem tekið verður tillit til enskumælandi fréttamanna fer námstefnan fram á ensku. Enn eru laus sæti, en nú fer hver að verða síðastur til að fá tækifæri til að nýta sunnudagsmorgun í Stokkhólmi til að kynna sér sjálfbæra þróun og norrænt samstarf.
Dagskrá námstefnunnar
Skráning hjá Magne Kveseth upplýsingafulltrúa í síma +45 20 738 378, netfang: mk@norden.org
