Document Actions

Formennska Íslands í Norðurlandaráði 2010

Þegar Íslendingar taka við formennsku þingmannasamstarfsins í Norðurlandaráði um áramót, með Helga Hjörvar sem forseta í fararbroddi, verða öryggismál, hafsvernd og menningarsamstarf í forgangi.

Jan 01, 2010
Helgi Hjörvar och Illugi Gunnarsson

Þegar Íslendingar taka við formennsku í þingmannasamstarfi Norðurlandaráðs um áramótin, með Helga Hjörvar sem forseta í fararbroddi, verður lögð áhersla á öryggismál, hafsvernd og menningarsamstarf.

Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

„Íslendingar munu leggja áherslu á öryggismál almennt", segir Helgi Hjörvar, forseti Norðurlandaráðs 2010. Unnið verður að samstarfi í baráttunni gegn skipulagðri glæpastarfsemi og mansali, hefðbundnu samstarfi í öryggismálum eins og þau eru skilgreind í Stoltenberg skýrslunni og síðast en ekki síst öryggi í efnahagsmálum, sem er mjög aðkallandi öryggismál ein og komið hefur í ljós.

Auk áherslu á öryggismál, munu Íslendingar beina sjónum að verndun hafsins, meðal annars í Eystrasaltssamstarfinu og í samstarfi um verndun viðkæmra vistkerfa Norður-Atlantshafsins.

Þá verða menning og tungumálasamstarf mikilvæg þemu í formennskuverkefnum Íslendinga í Norðurlandaráði.

Þingmaðurinn og jafnaðarmaðurinn Helgi Hjörvar var kjörinn forseti Norðurlandaráðs á Norðurlandaráðsþinginu í Stokkhólmi í október 2009. Sjálfstæðismaðurinn Illugi Gunnarsson var kjörinn varaforseti.

Nánari upplýsingar
Ferilskrá Helga Hjörvars
Vefsíða Helga Hjörvars
Helgi Hjörvar á Twitter

Tengiliðir

Silje Bergum Kinsten
Sími +45 33 96 02 51
Tölvupóstur siki@norden.org