Fórna Norðurlöndin unga fólkinu í kreppunni?
Velferðarnefnd Norðurlandaráðs hvetur norrænu ríkisstjórnirnar til að setja á laggirnar nýjar aðgerðir á félags- og heilbrigðissviði. Nefndin vill að ríkisstjórnirnar leggi áherslu á fyrirbyggjandi starf og setji á laggirnar sértækar aðgerðir vegna stöðu ungs fólks á vinnumarkaði.
„Í fjármálakreppu er hætta á kjör einstaklinga, til dæmis ungs fólks sem ekki hefur enn náð fótfestu á vinnumarkaði, versni. Fyrirbyggjandi aðgerðir og sértækar aðgerðir til að koma til móts við aukið atvinnuleysi ungs fólks í kjölfar fjármálakreppunnar eru mjög mikilvægar", segja fulltrúar í nefndinni í sameiginlegri yfirlýsingu.
Nefndin telur að aðgerðir innan heilbrigðis- og félagsmála hafi verulega þýðingu þegar leggja á áherslu á hnattvæðingarátakið 2010 og norrænt notagildi. Nefndin vill skýr svör um efnahagslega forgangsröðun norrænu ríkisstjórnanna hvað varðar norrænar áherslur í velferðarmálum á komandi árum.
Væntingar velferðarnefndarinnar, um ákvarðanir norrænu félagsmálaráðherranna um forgangsmál, sem væntanlega verða teknar á fundi þeirra sem haldinn verður dagana 29. og 30. júní á Íslandi eru miklar. Siv Friðleifsdóttir formaður nefndarinnar fundaði í síðustu viku með Árna Páli Árnasyni félagsmálaráðherra um málið.
Reiknað er með að upplýsingar um forgangsatriði hvað varðar þróun nýrra áherslna í hnattvæðingarmálum komi fram eftir fund samstarfsráðherranna í september. Norrænu forsætisráðherrarnir ákváðu árið 2007 sameiginleg norræn viðbrögð við áskorunum sem hnattvæðingin hefur í för með sér.
Velferðarnefnd Norðurlandaráðs vinnur þvert á flokka og landamæri að því að skapa betra velferðarsamfélag á Norðurlöndunum og í samvinnu við grannríkin. Árið 2009 er fyrst og fremst unnið að því að byggja upp sjálfbært og samþætt atvinnulíf á Norðurlöndunum.
Nánar um velferðarnefnd Norðurlandaráðs
