Forsætisráðherrarnir: Tvö málefni standa upp úr eftir Hnattvæðingarþingið 2010
Forsætisráðherrarnir efldu norrænt samstarf föstudaginn 21. maí. Lars Løkke Rasmussen forsætisráðherra Danmerkur var í forsvari fyrir forsætisráðherrana fimm, þegar hann á fréttamannafundi benti á tvö meginmálefni sem eiga að fá aukna athygli. Hann byggði orð sín á svokölluðum grænum hagvexti sem var þema Hnattvæðingarþingsins sem haldið var deginum áður.
Norrænu forsætisráðherrarnir vilja leggja áherslu á tvo málaflokka eftir Hnattvæðingarþingið 2010 (mynd).
- Ljósmyndari
- Johannes Jansson/norden.org
Skipa á starfshóp til þess að kortleggja hvar Norðurlöndin standa vel að vígi með tilliti til græns hagvaxtar og skilgreina hvar aukið samstarf Norðurlandanna leiði til virðisauka. Forsætisráðherrarnir telja að verkefni græns hagvaxtar séu afar margvísleg. Á sumum sviðum er best að finna lausn í hverju landi fyrir sig, í öðrum henta alþjóðlegar aðgerðir. Starfshópurinn á að kortleggja og koma með raunverulegar tillögur um hvernig grænn hagvöxtur getur orðið vegvísir í norrænu hnattvæðingarstarfi. Halldór Ásgrímsson framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar á að gera tillögu að starfsreglum fyrir starfshópinn. Ætlunin er að nota niðurstöður starfshópsins sem grundvöll ákvarðana á næsta ári.
Að auki urðu forsætisráðherrarnir sammála um að efla norrænt samstarf á sviði raforku. Ráðherrarnir telja að hægt sé að þróa norræna raforkumarkaðinn til hagsbóta fyrir neytendur, loftslagið og afhendingaröryggi. Forsætisráðherrarnir eru sammála um að danski orkumálaráðherrann ásamt starfssystkinum sínum semji tillögur að öflugu norrænu raforkusamstarfi, sem getur tekið við auknu magni af endurnýjanlegri orku. Loftslags- og orkumálaráðherrarnir eiga að skila skýrslu til norrænu forsætisráðherranna þegar þeir hittast næst í nóvember 2010.
Eitt annað mál sem tekið var upp á fundinum var áframhaldandi vinna við afnám stjórnsýsluhindrana. Samstarfið á þessu sviði, sem að miklum hluta fer fram á norrænu vettvangi um afnám stjórnsýsluhindrana, fékk umboð til að starfa í þrjú ár í viðbót.
Danir fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni árið 2010.
