Forsetinn fjallar um atvinnuleysi ungs fólks
Sinikka Bohlin forseti Norðurlandaráðs hvetur norrænu ríkisstjórnirnar í grein sem hún skrifar, til að taka meiri ábyrgð á stöðu unga fólksins á vinnumarkaði.
„Sífellt er verið að tala um aðlögun og samþættingu jaðarhópa í samfélaginu, alls staðar á Norðurlöndunum en það bólar ekkert á aðgerðum. Þetta á ekki síst við um unga fólkið sem á að taka við samfélaginu af okkur", segir forseti Norðurlandaráðs í upphafi greinarinnar.
Svíþjóð, Finnland og Ísland eru gagnrýnd sérstaklega með vísun í tölfræði sem sýnir fram á að ekki er nægilega vel tekið á málum. Bohlin telur að, að teknu tilliti til þess sem spáð er um aukið atvinnuleysi á næstu árum sé hætta á því að staða unga fólksins versni enn frekar. Jafnframt telur hún að við getum lært hvert af öðru og að við ættum að líta til þess sem gert er í Danmörku og Noregi með það að markmiði að halda atvinnuleysi ungs fólks í lágmarki.
Bohlin vísar í rannsóknir og vill taka sérstaklega á málum þeirra sem í mestri hættu eru á því að útilokast frá vinnumarkaðnum.
„Rannsóknir sýna að það að útilokast frá vinnumarkaði hefur einnig áhrif á heilsu unga fólksins, efnahag og félagslega stöðu. Útilokun hefur því í för með sér enn frekari afleiðingar meðal ungs fólks, sem er í jaðarhópum eins og hjá innflytjendum, ungu fóki sem ekki hefur lokið skólagöngu og ungu fólki með hreyfihömlun".
Í greininni kemur fram að Sinikka Bohlin vill að ríkisstjórnirnar skoði vel tillögur velferðarnefndar Norðurlandaráðs um málið. Tillögurnar fela meðal annars í sér að Norðurlöndin þrói og setji mælikvarða um sjálfbært atvinnulíf eins og gert hefur verið á umhverfissviðinu. Auk þess er lagt til að Norðurlöndin geri átak í að finna góð dæmi um reynslu einstaklinga sem nýta mætti til að sýna hvað virkar og hvers vegna. Auk þess að Norðurlöndin afnemi stjórnsýsluhindranir sem koma í veg fyrir að ungt fólk geti unnið annars staðar á Norðurlöndunum en í heimalandi, vegna þess að lögin eru svo flókin að unga fólkið veigrar sér við að sækja um vinnu þvert á landamæri.
