Document Actions

Framleiðendur skreyta sig með lánsfjöðrum

Ný eftirlitsskýrsla um notkun umhverfismerkisins Svanurinn í Danmörku leiðir í ljós að einstakir framleiðendur misnota merkið. Þetta heyrir þó til undantekninga annars staðar á Norðurlöndum og almennt er um að ræða mjög fá tilvik miðað við hve margir hafa leyfi til að nota merkið.

24/08 2011

 

Ný eftirlitsskýrsla frá Umhverfismerkingum Danmerkur  leiðir í ljós að einstaka framleiðendur skreyta sig með lánsfjöðrum Svansmerkisins og nota það án tilskilinna heimilda.

Ef miðað er við fjölda þeirra sem hafa rétt til að nota merkið er þó um tiltölulega fá tilvik að ræða og hafa bæði eftirlitsaðilar og þeir sem nota merkið stöðugt eftirlit með svansmerkinu um öll Norðurlönd.

„Svanurinn er virtasta og traustasta  umhverfismerki heims.  Enda þótt það sé til háborinnar skammar að merkið sé misnotað, er engin ástæða til að efast um gæði þess mikla starfs, sem umhverfismerkinganefndir í þjóðlöndunum inna af hendi til að tryggja að svansmerkt vara standist gæðakröfur", segir Halldór Ásgrímsson framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.

Svanurinn er ein af þeim umhverfismerkingum í heiminum sem gerir mestar kröfur til framleiðslugæða og kannanir sýna að  Svanrinn er eitt sterkasta merkið á markaði. Neytendakönnun sem gerð var 2011 sýndi fram á að Svanurinn er þekktasta umhverfismerkið á Norðulöndum og með mestan trúverðugleika.

Í skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar til norrænu umhverfisráðherranna frá 2010 kemur fram að Svansmerkið sé nýtt í 65 framleiðsluvöruflokkum, sem telji rúmlega 5.000 vörur. 2.000 nýtingarleyfi hafa verið veitt rúmlega 1.000 fyrirtækjum Á árinu 2010 fundust um 100 dæmi um misnotkun á merkinu.

Nánar í eftirlitsskýrslunni (á dönsku)

Tine Due Hansen Svanen - Danmörku 0045 22 85 15 55

Tengiliðir

Tine Due Hansen
Svanen - Danmark
0045 22 85 15 55

Tengt efni
  • Svanurinn flýgur á framandi slóðir (News Item)

    Umhverfisráðherrar Norðurlanda hafa samþykkt nýja framtíðarsýn fyrir umhverfismerkið Svaninn, sem verður framvegis einnig notað til að markaðssetja norrænar vörur utan Norðurlanda Jafnframt ætlar Norræna ráðherranefndin að auka framlag sitt til þessarar umhverfismerkingar. Ráðherrarnir telja jafnframt að tengja þurfi betur Svaninn við umhverfismerki ESB.

  • Umhverfismerkið Svanurinn fær hæstu einkunn neytenda (News Item)

    Rúmlega 90% Norðurlandabúa þekkja Svaninn, umhverfismerki Norrænu ráðherranefndarinnar. Og níu af hverjum tíu telja að neytendur stuðli að umhverfisvernd með því að kaupa vörur merktar Svaninum. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem gerð var í norrænu ríkjunum fimm.