Document Actions

Fréttamennska frá norrænu sjónarhorni

Endurmenntunarstofnun blaðamanna, CFJE, í Danmörku hefur séð um rekstur Norrænu blaðamannamiðstöðvarinnar, NJC frá því um áramót. Hugmyndir um breytingar í framtíð NJC munu koma fram í nýjungum sem kynntar verða eftir sumarfrí. Hugmyndirnar verða byggðar á sögulegum grunni NJC sem átti upprunalega að vera Norrænt fréttamannanámskeið. Lögð verður áhersla á það sem er norrænt og fréttamennsku, en þessi tvö atriði verða rauður þráður í gegnum allt sem NJC mun taka sér fyrir hendur, þetta skrifar Steen K. Rasmussen, stjórnandi NJC:

04/05 2006

Með þessu er átt við að þekking um norrænar aðstæður, um tengingu Norðurlandanna við önnur lönd í heiminum, þekking á sameiginlegum menningararfi og allt annað sem tengist því að vera norræn stofnun mun verða hluti af öllu sem NJC stendur fyrir.

Jafnframt verður lögð mikil áhrif á faglega fréttamennsku. Hvað getum við Norðurlandabúar lært um fréttamennsku hvert af öðru ? Hvernig getum við orðið betri í því að miðla, greina og lýsa norrænum aðstæðum sem og öðrum?

Áætlað er að bjóða fjölda óformlegra viðburða undir nafni NJC, en miða samt sem áður að hæfnisuppbyggingu. Þar er til að mynda átt við ráðstefnur og námstefnur, stutt námskeið og verkefni sem unnin verða þvert á landamæri.

Ein ráðstefna og ein námstefna munu fjalla um norræna hagsmuni, annars vegar í tengslum fiskveiðar og hins fjárhættuspilamarkaðinn. Á þessum viðburðum munu norrænir fréttamenn fá tækifæri til að hittast, ræða saman faglega og um málefnið sem á dagskrá er.

Seinna á árinu mun NJC standa fyrir norrænni ráðstefnu um fréttamennsku eftir að skopteikningarnar af Múhameð birtust. Endurmenntunarstofnun blaðamanna mun einnig taka þátt í samstarfinu við NJC, sem mun koma sér vel fyrir norræna fréttamenn sem vilja endurmennta sig.