Fudanháskóli í Sjanghæ vill aukið samstarf við Norðurlönd
Á fimmtudag tóku fulltrúar Fudanháskólans í Sjanghæ á móti norrænum ráðherrum til að ræða aukið samstarf Kína og norrænu ríkjanna. Fundurinn var haldinn á vegum Norrænu miðstöðvarinnar. Miðstöðin sem er staðsett í háksólanum og samræmir rannsóknasamstarf og vistaskipti námsmanna er einnig í samstarfi við norræn fyrirtæki í Sjanghæ.
Norræna miðstöðin er gott dæmi um samstarf Kína og Norðurlanda, sagði Jan Vapaavuori samstarfsráðherra Finnlands.
– Norræna miðstöðin er gott dæmi um samstarf Kína og Norðurlanda og einnig um samstarf norrænu ríkjanna innbyrðis, sagði Jan Vapaavuori samstarfsráðherra Finnlands.
Fudanháskóli er í samstarfi við 26 háskóla á Norðurlöndum, en á þessu ári eru 15 ár frá því hann var stofnaður.
Martin Bech verkefnastjóri hjá miðstöðinni kallaði eftir auknu samstarfi á fundinum og nefndi í því samhengi ritið ”The Nordic Welfare State” sem kom út nýlega.
Hann telur að Norðurlöndin eigi að hafa frumkvæði að stofnun rannsóknaseturs við Fudanháskóla til að rannsaka norræna velferðarlíkanið. Hann kallaði jafnframt eftir sveigjanlegri námsleið þar sem norrænir og kínverskir námsmenn gætu stundað nám við Fudanháskóla í eitt ár og að því loknu við ýmsa háskóla á Norðurlöndum.
Palle Christiansen samstarfsráðherra Grænlands fagnaði verkefnum sem gætu aukið samstarf landanna.
Hann nefndi t.d. að háskólinn í Grænlandi, sem hann vill gjarnan að vinni í hnattræmi samhengi , sé um þessar mundir að þróa námsleiðir á sviði orku- og loftslagsmála sem geti leitt til samstarfs við Kína.
Fundurinn var haldinn í tengslum við heimssýninguna í Sjanghæ, en norrænu ríkin standa fyrir fjölmörgum viðburðum þar á þessu ári.
Að fundinum loknum hittu ráðherrarnir norræna námsmenn í Nordic Lighthouse þar sem viðburðirnir eru haldnir, og einnig sýningin vinsæla New Nordic Landscape.
Á föstudag verður kínversk-norræni orku- og loftslagsdagurinn haldinn í Sjanghæ.
Nánar um The Nordic Centre.
