Fundað í Björgvin um orkunotkun Norðurlanda og Rússlands
Orkunýting verður aðalumræðuefnið á fundi Norðurlandaráðs og fulltrúa rússnesku Dúmunnar þegar þeir funda í Björgvin dagana 25.-27. maí. Þingmennirnir munu hitta sérfræðinga frá Statoil og háskólanum í Björgvin og heimsækja Oseberg-olíuborpallinn.
- Okkur finnst þetta vera gott tilefni til að miðla reynslu okkar til Rússa og heyra af þeirra reynslu á sviði orkunýtingar, en þar standa norrænu ríkin framarlega, segir Dagfinn Høybråten.
- Ljósmyndari
- Magnus Fröderberg/norden.org
- Okkur finnst þetta vera gott tilefni til að miðla til Rússa reynslu okkar og heyra af þeirra reynslu á sviði orkunýtingar, en þar standa norrænu ríkin framarlega. Þar sem Rússland er auðugt af olíu og gasi er heimsóknin til Björgvin afar mikilvægt fyrir starfssystkin okkar í austri segir Dagfinn Høybråten formaður norsku sendinefndarinnar í Norðurlandaráði.
Þetta er ekki fyrsti fundur norrænna og rússneskra þingmanna. Í fyrra hittust fulltrúar Norðurlandaráðs og Dúmunnar í Khanti-Mansyisk í Rússlandi.
Þessir fundir stuðla að auknum skoðanaskiptum milli þingmanna frá norrænu ríkjunum og Rússlandi og einfalda okkur að eiga samstarf um sameiginleg hagsmunamál, segir Helgi Hjörvar, forseti Norðurlandaráðs og alþingismaður.
Á fundinum í Björgvin munu þingmennirnir einnig fylgja eftir tillögum ungra stjórnmálamanna frá Norðurlöndum og Norðvestur-Rússlandi, fráfundi sem haldinn var í Kirkenes nýlega. Þar var m.a. rætt um samskipti Rússlands og Norðurlanda og takmarkanir á ferðafrelsi yfir landamæri ríkjanna.
Þá verður fjallað um aðra þingmannaráðstefnu Norðlægu víddarinnar sem haldin verður í Tromsø árið 2011 og önnur möguleg samstarfsverkefni ríkistjórna Rússlands og norrænu ríkjanna.
Þingmennirnir hitta sérfræðinga frá Statoil og háskólanum í Björgvin þriðjudaginn 25. maí á námstefnu um endurnýjanlega orkugjafa. Á miðvikudeginum heimsækir sendinefndin Oseberg olíuborpallinn í Norðursjó og fimmtudaginn 27. maí verða hringborðsumræður.
Fundurinn er haldinn í ljósi þess að samskipti Rússlands við Norðurlönd hafa aukist. Nýlega heimsótti forseti Rússlands Noreg og Danmörku og í undirritaði þá samkomulag við Norðmenn um nýja efnahagslögsögu.
Fulltrúar Noregs á fundunum eru Dagfinn Høybråten (KrF), formaður sendinefndar Noregs í Norðurlandaráði, Per-Kristian Foss (H) og Per Rune Henriksen (A) (frá Björgvin, Hordaland).
Tengiliðir
Silje Bergum Kinsten
Sími
+45 33 96 02 51
Tölvupóstur
siki@norden.org
