Þann 20. febrúar verður haldin námstefna á Grænlandi fyrir stjórnmálamenn og embættismenn sem bera ábyrgð á utanríkismálum. Halldór Ásgrímsson framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar talar um hlutverk nefndarinnar gagnvart heimskautssvæðunum:
"Norræna ráðherranefndin vill stuðla að því að heimskautssvæðin verði áfram ofarlega á dagskrá á alþjóðavettvangi. Þess vegna hefur ráðherranefndin við mörg tækifæri – nú síðast á norrænu ráðstefnunni í Hanaasari í Finnlandi í liðnum mánuði - gefið til kynna að Norðurlönd væru, í samstarfi við aðra, tilbúin til að taka þátt í að halda framhaldsráðstefnu um utanríkismál, en sú fyrri var haldin á Grænlandi í formennskutíð Dana í ESB árið 2002. Það er von okkar að önnur svæðaráð – einnig ESB vilji taka þátt í að halda ráðstefnu á Grænlandi.
Harri Maki-Reinikka sendiherra frá finnska utanríkisráðuneytinu fjallar um norrænt samstarf og norðlægu vídd ESB. Finnar fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni í ár. Gunnar Westerholm, fulltrúi Álandseyja í Norrænu samstarfsnefndinni fjallar um utanríkisstefnu Álandseyja. Að lokum ræðir Josef Motzfeldt, sem fer með fjármál og utanríkismál í grænlensku landsstjórninni, um áherslur Grænlands í utanríkismálum."