Fyrstu öndvegisrannsóknaverkefnin að hefjast
Fyrstu verkefnin sem fengið hafa styrki úr Öndvegisrannsóknaáæltun Norrænu ráðherranefndarinnar eru að fara af stað. 10 verkefni fengu styrki í fyrsta áfanga úr undiráætluninni "Rannsóknir á áhrifum og aðlögun að loftslagsbreytingum". Rannsóknir sem gerðar verða í þesskum verkefnum eiga að auka þekkinu á áhrifum loftslagsbreytinga, og beina sjónum að því hvernig við getum sem best aðlagað okkur að breyttum aðstæðum.
Rannsóknir sem unnar verða innan verkefnanna eiga að auka þekkinu á áhrifum loftslagsbreytinganna, og beina sjónum að því hvernig við best getum aðlagað okkur í framtíðinni.
"Þessi tengslanet í rannsóknum verða góð byrjun",segir Mogens Henze formaður stjórnarformaður áætlunarinnar.
"Í öllum umsóknum var sýnt fram á þverfaglega sérfræðiþekkingu og þau tengslanet sem nú fá styrk uppfylla öll skilyrði sem gerð eru í Öndvegisrannsóknaáætlunni", segir Henze, sem telur að þetta geti haft markverð áhrif á þróun norræns rannsóknasamstarfs á komandi árum.
" Við hvöttum umsækjendur til að fá í lið með sér þátttakendur úr atvinnulífinu, stjórnmálamenn og aðra hagsmunaaðila og í mörgum umsóknum var einmitt samstarfið veigamikill þáttur ", segir Simone Heinz verkefnisstjóri hjá Norrænu rannsóknamiðstöðinni NordForsk.
"Við munum leggja áherslu á samband við hagsmunaaðila verði aukið á verkefnistímabilinu, til að mynda með því að halda ráðstefnur sem tengjast verkefnunum.
Nefnd skipuð fimm sérfræðingum utan Norðurlanda fór yfir umsóknirnar sem bárust og mátu þær, þann 19. janúar 2010 vour valin þau tíu verkefni sem fengu fjármögnun við fyrstu úthlutun úr áætluninni.
• Climate and Biodiversity - Árósaháskóla, Danmörku
• NORDic CLimate change ADaptation research Network (NORDCLAD-Net) - Umhverfisstofnun Stokkhólms (SEI), Svíþjóð
• Nordic Network on Adaptive Management in relation to climate change (NONAM) - Veðurstofan, Finnlandi
• Nordic Climate Mitigation, Adaptation and Economic Policies (N-CMAEP): establishing an interdisciplinary strategic approach for addressing solutions to the changing climate - Árósaháskóli, Danmörku
• Nordic Network for Climate Change, Adaptation, and Multilevel Governance (NORCAM) - CICERO Miðstöð um loftslagsrannsóknir, Noregi
• Coastal Adaptation and Climate Change - DHI, Tækniháskólinn, Danmörku
• People and ecosystems in a changing environment - Háskólinn í Oulu, Finnlandi
• Nordic Waterbirds and Climate Network(NOWAC) - Árósaháskóli, Danmörku
• Interdisciplinary research: theories and applications in urban climate change adaptation -
Háskólinn í Ósló, Noregi
• Statistical Approaches to Regional Climate Models for Adaptation -Norska tölfræðistofnunin, Noregi
Del.icio.us
Facebook
Google Bookmarks
Twitter
Digg
