Heidi Grande Røys samstarfsráðherra Noregs gagnrýnir ákvörðun Norðurlandaráðs æskunnar (UNR) um að nota ensku sem vinnutungumál.
„Norrænu tungumálin sem vinnutungumál eru ein af undirstöðum norræna samstarfsins. Skilningur okkar á tungumálum hvers annars hefur styrkt tengingu okkar Norðurlandabúa með líkum gildum, menningu og landfræðilega. Norrænt samstarf myndi missa mikið ef enska yrði tekin upp sem sameiginlegt vinnutungumál í samstarfi Norðurlandanna“, segir Grande Røyes. Að hennar mati ætti frekar ætti að túlka frá skandinavísku til/frá finnsku og íslensku.
Samstarfsráðherrann er því á sama máli og Bertil Haarder menntamálaráðherra Dana, sem gagnrýndi ákvörðunina í danska dagblaðinu Politiken á dögunum. Haarder sagði í viðtali við Politiken að það að nota ensku sem vinnutungumál í Norðurlandaráði æskunnar gengi gegn hugmyndafræðinni um norrænt samstarf. Hann telur því að afnema ætti styrki til Norðurlandaráðs æskunnar velji það að eiga samskipti á ensku.
Grande Røys ætlar að ræða málið við starfsystkin sín á næsta fundi þeirra í Norrænu ráðherranefndinni.
Fulltrúar í Norðurlandaráði æskunnar (UNR) eru fulltrúar ungliðahreyfinga norrænu stjórnmálaflokkana og ýmissa norræna stjórnmálasamtaka.
Norðurlandaráð æskunnar kemur saman árlega í tengslum við Norðurlandaráðsþing. Starfsemi ráðsins er að mestum hluta fjármögnuð af Norðurlandaráði.