Gerður Kristný hlýtur barnabókarverðlaun
Gerður Kristný hlýtur Barna-og unglingabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins 2010 fyrir skáldsöguna Garðurinn. Ólína Þorvarðardóttir formaður ráðsins og prófessor Dagný Kristjánsdóttir afhentu Gerði Kristnýju verðlaunin sem nema um 1,2 milljón íslenskra króna í Alþingishúsinu.
Gerður Kristný hlýtur Barna-og unglingabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins 2010 fyrir skáldsöguna Garðurinn. Ólína Þorvarðardóttir formaður ráðsins og prófessor Dagný Kristjánsdóttir afhentu Gerði Kristnýju verðlaunin
Þetta er í fimmta skipti sem verðlaunin eru veitt en þeim er úthlutað annað hvert ár.
Í rökstuðningi dómnefndar segir meðal annars að Garðurinn sé ,,unglingabók, samtímasaga og fortíðarsaga, skrifuð af fagmennsku og sjaldgæfum glæsibrag. Nútíð og fortíð tengjast í mörgum hliðarsögum og mörkin milli hins þekkta og óþekkta eru dregin í efa.
Garðurinn gerist í Reykjavík. Gerður Kristný blandar saman ólíkum bókmenntagreinum og beitir aðferðum draugasagna, fantasíu, sálfræðilegra þroskasagna og sögulegra skáldsagna. Íslandssagan leikur stórt hlutverk í skáldsögunni.
Gerður Kristný er með BA próf í frönsku frá Háskóla Íslands með bókmenntir sem aukagrein. Hún nam einnig fjölmiðlafræði á árunum1992 og 1993.
Gerður Kristný hefur skrifað fjölda bóka, barnabækur, skáldsögur og ævisögur. Ljóð hennar og smásögur hafa verið gefin út í ýmsum safnritum, bæði á íslensku og öðrum tungumálum.
Auk Garðsins voru tilnefndar til þessara verðlauna Vestnorræna ráðsins bækurnar Várferðin til Brúnna frá Færeyjum eftir Rakel Helmsdal og Sila frá Grænlandi eftir Lana Hansen.
Aðrar bækur sem hlotið hafa þessi verðlaun eru „Sagan af bláa hnettinum" eftir Andra Snæ Magnason (2002), „Engill í vesturbænum" eftir Kristínu Steinsdóttur og Höllu Sólveigu Þorgeirsdóttir (2004), færeyska bókin „Ein hundur, ein ketta og ein mús” eftir Bárð Oskarsson (2006) og Draugaslóð eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur (2008).
Tengiliðir
Thordur Thorarinsson, Vestnordiske Råds generalsekretær,
+354 5630731,
vestnordisk@althingi.is
