Góðar fréttir af norrænum skógum
Um þessar mundir er verið að vinna að mörgum áhugverðum verkefnum í norrænum skógum sem allir geta notið góðs af. Upplýsingum um verkefnin verður safnað saman á nýrri heimasíðu og þar verður til eins konar hugmyndabanki, þar sem lýst er hvernig mynda megi á áhrifaríkan hátt virðisauka og tryggja að nærsamfélagið njóti sem best skóganna. Dæmum er safnað saman af vinnuhóp á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar.
-Meginmarkmið heimasíðunnar er að miðla mörgum og ólíkum hugmyndum um nýtingu skóganna, þannig að Norðurlandabúar, þrátt fyrir mismunandi reglur og hefðir við landnýtingu til framleiðslu og tómstunda, geti fengið hugmyndir og lært hvert af öðru, segir Morten Ingerslev, sérfræðingur og verkefnisstjóri, en hann starfar við líffræðideild Kaupmannahafnarháskóla.
Í Vesturskóginum, sem er um 15 kílómetra frá Kaupmannahöfn, hefur hópur þroskaheftra einstaklinga blómstrað í starfi og gert mikið gagn sem aðstoðarfólk í náttúrumiðstöðinni Herstedhøje. Í klukktímafjarlægð frá Ósló hefur norskur skógareigandi gert skógræktina sína að vinsælum áfangastað fyrir skipulagðar útivistarferðir fyrirtækja. Og í Svíþjóð reynir arkitektinn Thorbjörn Holmlund aðfá leyfi til þess að byggja 45 metra háan elg úr límtré, en í kvið hans á að vera ráðstefnumiðstöð.
Þessi dæmi eru aðeins brot af þeim mörgu verkefnum sem unnið er að í norrænum skógum um þessar mundir og hefur verið safnað saman á heimasíðunni.
Markmiðið er að mynda virkisauka á hverjum stað með nýjum leiðum og tryggja þar með að nærsamfélagið njóti sem best skóglendis. Eigendur skóga, embættismenn og stjórnmálamenn eru því helstu markhópar heimasíðunnar - en einnig almennir borgarar sem hafa áhuga á skóginum í sínu nágrenni og þeim tækifærum sem hann býður uppá.
Nánar á www.skovenslokalevaerdier.dk
Tengiliðir
Mads Randbøll Wolff
Sími
+45 33 96 02 56
Tölvupóstur
mrw@norden.org
