Græn hagstjórnun þema Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs
Hvaða peningasjóðum hefur tekist að mið af umhverfissjónarmiðum í úthlutunum sínum? Eða, hvaða blaðamanni hefur tekist að bæta þekkingu neytenda á sjálfbærri hagstjórn?
Árið 2010 verða Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs, sem nema 350.000 dönskum krónum, veitt í sextánda sinn. Þema verðlaunanna að þessu sinni er sjálfbær peningastjórnun.
Verðlaunin verða veitt norrænu fyrirtæki, stofnun, fjölmiðli eða einstaklingi, sem hefur verið í fararbroddi og haft áhrif, beint eða óbeint, á fjármálamarkaðinni, fjármögnunarstarfsemi, banka eða ráðgjafa í því augnamiði aðná fram langtíma markmiðum og samþætta hugmyndafræði um sjálfbæra þróun inn í fjármálaumsýslu.
Tilnefningar skulu berast til sendinefndar Dana í Norðurlandaráði fyrir kl. 12, föstudaginn 11. desember 2009. Eyðublað má nálgast á vefsíðu Norðurlandaráðs.
Frá og með árinu 2010 verða breytingar á ákvörðunum um umhverfisverðlaunin. Í stað þess að dómnefnd ákveði vinningshafa að hausti eins og hingað til, verður ákvörðunin tekin í maí.
Norrænu Náttúru- og umhverfisverðlaunin eru ein af fernum verðlaunum Norðurlandaráðs, önnur verðlaun eru veitt fyrir bókmenntir, kvikmyndir og tónlist. Sænska skólaverkefnið Í öllu veðri (I Ur och Skur) hlaut umhverfisverðlaunin 2009.
Tengiliðir
Kamilla Kjelgaard,
Norðurlandaráði, skrifstofu sendinefndar Danmerkur
sími: +45 33 37 59 99
Netfang: nrpost@ft.dk
