Document Actions

Grænt samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna við ESB um Eystrasaltssvæðið

Nú fer það að verða grænt og nýskapandi að búa á Hólminum í Kaupmannahöfn. Þetta verður þegar áhrifamestu fulltrúar svæðisins koma saman á 14. leiðtogafundi Baltic Development Forum og þriðja árlega fundinum um stefnu ESB um Eystrasaltssvæðið.

15/06 2012

„Norræna ráðherranefndin stendur vel að vígi til að verða í fararbroddi í svæðasamstarfinu - ekki einungis Norðurlandanna fimm, heldur á öllu Eystrasaltssvæðinu", segir Halldór Ásgrímsson.

Ljósmyndari
Silje Bergum Kinsten/norden.org

14. leiðtogafundur Baltic Development forum og 3. árlegi fundur Framkvæmdastjórnar ESB um stefnu ESB um Eystrasaltssvæðið verða haldnir í Kaupmannahöfn dagana 17. - 19. júní 2012. Á sama tíma ítrekar Norræna ráðherranefndin stuðning sinn við stefnu ESB og veitir virkan stuðning við samstarfs- og þróunarverkefni á svæðinu.

Titill ráðstefnunnar í ár, ,„Connecting Europe – Smart and Green Partnerships in the Baltic Sea Region", vísar til þeirra áherslna sem settar hafa verið á svæðinu um að efla sjálfbæran hagvöxt og samkeppnishæfni með alþjóðlegu opinberu og einkasamstarfi.

Norræna ráðherranefndin leggur sitt af mörkum meðal annars með útgáfu skýrslunnar „Political State of the Region Report". Í skýrslunni er sjónum beint að svæðisbundinni stjórnun og samræmingu. Skýrslan verður kynnt á ráðstefnunni sem upplegg til umræðu um stöðu svæðisbundins samstarfs og samþættingar á Eystrasaltssvæðinu.

Norræna ráðherranefndin, stendur, í tengslum við ráðstefnuna, að námstefnu undir heitinu „Sustainable Bioenergy – the Baltic Sea Region as a Global Leader". Á námstefnunni verður rætt um áskoranir og tækifæri sem felast í þróun sjálfbærrar lífrænnar orku á Eystrasaltssvæðinu auk þess að lögð verður fram tillaga um þverfaglegt þema innan stefnu ESB fyrir Eystrasaltssvæðið.

Norræna ráðherranefndin veitir virkan stuðning við stefnu ESB um Eystrasaltssvæðið og þær áherslur sem settar hafa verið: „Að bjarga hafinu", „Að tengja svæðið saman" og „Að auka velmegun". Með nánu samstarfi við samstarfsaðila eins og Framkvæmdastjórn ESB, Baltic Development Forum og fleiri opinbera- og einkaaðila á Eystrasaltssvæðinu styður Norræna ráðherranefndin aukna samræmingu verkefna. Þetta á að verða til þess að auka samvirkni og árangursríka nýtingu mannauðs og fjármagns.

„Norræna ráðherranefndin stendur vel að vígi til að verða í fararbroddi í svæðasamstarfinu - ekki einungis Norðurlandanna fimm, heldur á öllu Eystrasaltssvæðinu", segir Halldór Ásgrímsson, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.

„Norræna ráðherranefndin er vettvangur milliríkjasamstarfs og veitir því aðgang að fjölda samstarfsneta á Eystrasaltssvæðinu, meðal annars í gegnum sértækar norrænar stofnanir og upplýsingaskrifstofur Norrænu ráðherranefndarinnar í Eistlandi, Lettlandi og Litháen og í Norðvestur-Rússlandi", segir hann einnig.

Myndskeið með tveimur viðtölum sem tekin voru í bás Norrænu ráðherranefndarinnar í Baltic Development Forum 2012

Tengiliðir

Jesper F. Schou-Knudsen
Sími +45 33 96 03 55
Tölvupóstur jsk@norden.org

Ola Yndeheim
Tölvupóstur oy@norden.org

Ane Kofod Petersen
Sími +45 3396 0254
Tölvupóstur akp@norden.org