Guðfríður Lilja Grétarsdóttir : Ísland mun standa við skuldbindingar sínar
Íslendingar ætlar að standa við skuldbindingar sínar, segir Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, varaformaður íslensku sendinefndarinnar í Norðurlandaráði.
„Málefnaleg og réttlát umræða um ástandið á Íslandi, getur skipt sköpum fyrir velferðarsamfélagið og fyrir sjálfstæði íslensks hagkerfis í framtíðinni"
- Ljósmyndari
- Johannes Jansson/norden.org
Norðurlöndin og norrænir stjórnmálamenn ættu að leggja á það áherslu alls staðar á Norðurlöndum og annars staðar í heiminum, að Íslendingar ætla að standa við skuldbindingar sínar. Annað hefur aldreið staðið til. Það verður sífellt að leggja á það áherslu að Íslendingar taka ábyrgð, en biðja jafnframt um sanngirni, segir Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri-grænn og varaformaður íslensku sendinefndarinnar í Norðurlandaráði.
„Málefnaleg og réttlát umræða um ástandið á Íslandi, getur skipt sköpum fyrir velferðarsamfélagið og fyrir sjálfstæði íslensks hagkerfis í framtíðinni", segir Guðfríður Lilja Grétarsdóttir þingmaður Vinstri-grænna og fulltrúi í umhverfis- og auðlindanefnd Norðurlandaráðs.
Guðfríður Lilja sendir þakkir til danska þingmannsins Line Barfod sem fyrr í þessari viku talaði máli Íslendinga á norrænum vettvangi.
Eftir að Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands neitaði að staðfesta lög um Icesave samninginn 5. janúar, hafa margir fjölmiðlar haldið því fram að Íslendingar ætli ekki að standa við skuldbingar vegna tapaðra innlána Breta og Hollendinga þegar bankakreppan skall á 2008. Þetta er ekki rétt.
Tengiliðir
Björg Eva Erlendsdóttir
Sími
+354 563 0786
Tölvupóstur
beva@althingi.is
