Hægrimenn í Norðurlandaráði: Verðum að standa vörð um norræn gildi
Í sameiginlegri blaðagrein mæla sex stjórnmálamenn fyrir auknu norrænu samstarfi.
Sex fulltrúar í flokkahópi hægrimanna í Norðurlandaráði hvetja til þess í grein í sænska dagblaðinu Kvällsposten að norrænt samstarf verði eflt.
Þeir leggja áherslu á hlutverk Norðurlanda í heiminum og ítreka að varðveita skuli kjarnan í norræna velferðarríkinu án þess að glutra niður samkeppnishæfni á alþjóðavettvangi.
Þeir benda einnig á að þörf er fyrir frekari aðgerðir á loftslags- og umhverfissviði, ekki síst á Eystrasaltssvæðinu, og á mikilvægi þess að menntastofnanir og vinnumarkaðurinn vinni saman,
Þeir sem undirrita greinina eru Hans Wallmark (M - Svíþjóð), Per-Kristian Foss (Hægri - Noregi), Anne-Mari Virolainen (Sameiningarflokknum - Finnlandi), Fredrik Karlström (Samband óháðra - Álandseyjum), Jørgen Lundsgaard (K - Danmörku) og Bjarni Benediktsson (Sjálfstæðisflokknum - Íslandi)
Greinin öll í Kvällsposten.
Tengiliðir
Páll Heimisson
Tölvupóstur
pall@xd.is
